fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Lengjudeild karla: Þróttur náði í stig gegn Fram – Grótta vann Grindavík

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 24. ágúst 2021 21:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveimur leikjum er nýlokið í Lengjudeild karla. Leikið var í 18. umferð.

Grótta 2-1 Grindavík

Grótta vann dramatískan sigur á Grindavík á heimavelli.

Sigurður Bjartur Hallsson kom gestunum yfir um miðjan fyrri hálfleik. Kjartan Kári Halldórsson jafnaði metin fyrir Gróttu á 33. mínútu.

Í blálok leiksins skoraði Sigurvin Reynisson svo sigurmark Heimamanna. Lokatölur 2-1.

Grótta er í fimmta sæti deildarinnar með 29 stig. Grindavík er í sjöunda sæti með 23 stig.

Þróttur Reykjavík 2-2 Fram

Þróttur og Fram gerðu jafntefli á Eimskipsvellinum í Laugardal.

Róbert Hauksson kom heimamönnum í Þrótti yfir strax á 4. mínútu.

20 mínútum síðar jafnaði Alexander Már Þorláksson fyrir Fram.

Þórir Guðjónsson kom gestunum svo yfir eftir um tíu mínútur í seinni hálfleik.

Það stefndi í enn einn sigur Fram þegar Sam Hewson skoraði með glæsilegri aukaspyrnu. Lokatölur 2-2.

Fram er á toppi deildarinnar með 48 stig, þegar búið að tryggja sér sæti í efstu deild að ári.

Þróttur er í ellefta og næstneðsta sæti með 11 stig, 7 stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður

Ræðir fíkn sem fáir eru að tala um – Eyðilagði draum hans sem ungur maður
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur

City horfir til Tottenham – Búast við afslætti ef Spurs fellur
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester

Stuðningsmenn Real Madrid fá frábærar fréttir fyrir leikinn í Manchester
433Sport
Í gær

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Í gær

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands

Óvissa um leikmann Liverpool – Áhugi innan og utan Englands