fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
433Sport

Shaqiri að yfirgefa Liverpool – Á leið til Frakklands

Helga Jónsdóttir
Miðvikudaginn 11. ágúst 2021 20:45

Xherdan Shaqiri á æfingu hjá Liverpool / Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Xherdan Shaqiri er á leið frá enska stórliðinu Liverpool til franska liðsins Lyon. Hann hefur náð samkomulagi við Lyon um laun en félagið á enn eftir að ná saman við Liverpool um kaupverð.

Shaqiri gekk til liðs við Liverpool árið 2018 og vann bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu með félaginu. Hann náði aldrei að verða reglulegur byrjunarliðsmaður og var töluvert meiddur á þessum tíma.

Samkvæmt Di Marzio eru félögin nálægt því að ná samkomulagi. Lyon hefur boðið 6 milljónir evra í leikmanninn en Liverpool krefst þess að fá 8 milljónir fyrir kappann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik

Strákarnir okkar mæta Japan – Unnið að því að skipuleggja annan leik
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Leikmenn Senegal bregðast við niðurstöðunni – „Ég held að við séum á geðveikrahæli“

Leikmenn Senegal bregðast við niðurstöðunni – „Ég held að við séum á geðveikrahæli“
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan

Love Island-stjarna fullyrðir að erfitt sé að fá starf eftir þátttöku í þáttunum – Segir að þetta sé ástæðan
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

FIFA hafnar beiðni Íran

FIFA hafnar beiðni Íran
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði

Fannst látinn nálægt vinsælum áfangastað ferðamanna – Með skotsár á höfði