fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
433Sport

Bjarna blöskrar þessi ákvörðun Þórólfs – „Djöf­ull fór það í taug­arn­ar á mér“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 20. maí 2021 08:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti verulega athygli fyrr í vikunni þegar það kom í ljós að Daði og Gagnamagnið sem keppir fyrir hönd Íslands í Eurovison fékk forgang í bólusetningu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og hans fólk ákvað að bólusetja hópinn þrátt fyrir að viðmiðin séu önnur.

Hefur þetta reitt margan manninn til reiði og sérstaklega fólk í afreksíþróttum, þeir einstaklingar þurfa nú að ferðast um Evrópu í þeirri von um að eiga möguleika á miða á Ólympíuleikana í sumar en Þórólfur hefur látið hafa eftir sér að sá hópur fá ekki forgang.

„Af­reksíþrótta­fólkið okk­ar er besta land­kynn­ing sem við eig­um. Svo ég tali nú ekki um for­varn­ar- og lýðheils­u­starfið sem þetta fólk vinn­ur, bæði meðvitað og ómeðvitað,“ skrifar Bjarni Helgason blaðamaður á Morgunblaðinu reiður í blaði dagsins.

Hann varð verulega reiður þegar fréttirnar um Gagnamagnið fóru í loftið, þrátt fyrir bólusetningu kom upp smit í hópnum og getur hljómsveitin ekki sungið og trallað á Eurovison. „Djöf­ull fór það í taug­arn­ar á mér þegar ég sá að Eurovisi­on­far­arn­ir hefðu fengið for­gang í bólu­setn­ingu fyr­ir ferðalag sitt til Rotter­dam, rúm­lega tveim­ur og hálf­um mánuði eft­ir að sótt­varna­lækn­ir hafði gefið það út að ekki væri hægt að velja fólk eft­ir mik­il­vægi í bólu­setn­ing­ar.“

Bjarni segir að stjórnvöld hugsi ömurlega um okkar helsta afreksfólk í íþróttum. „Af hverju hugs­um við svona illa um íþrótta­fólkið okk­ar? Á Íslandi eru at­vinnu­leys­is­bæt­ur fyr­ir marga sem hafa eng­an áhuga á því að vinna, bæði er­lenda og ís­lenska rík­is­borg­ara. Þá hef­ur lista­fólk hér á landi verið í áskrift að lista­manna­laun­um ár eft­ir ár. Hvort þetta fólk hef­ur skilað af sér ein­hverri áþreif­an­legri vinnu hef ég ekki hug­mynd um, ég hef alla­vega ekki orðið neitt sér­stak­lega var við það í sum­um til­fell­um.“

Bjarni heldur svo áfram. „Það er allri þjóðinni til heilla ef íþrótta­fólkið okk­ar nær góðum ár­angri úti í hinum stóra heimi og það sýndi sig kannski best á EM 2016 í knatt­spyrnu. Nú er mál að stjórn­mála­menn hér á landi beiti sér af al­vöru fyr­ir því að styrkja íþrótta­fólkið og íþrótta­hreyf­ing­una okk­ar. Fólk á að geta stundað sína íþrótt af kappi, líkt og í lönd­un­um í kring­um okk­ur, án þess að þurfa að lifa á morgun­korni heilu og hálfu vik­urn­ar,“ skrifar Bjarni í Morgunblaðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior

Fullyrðir að farið sé að hitna undir Rosenior
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

U-beygja ekki í kortunum

U-beygja ekki í kortunum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband

Var orðinn verulega pirraður á endurteknum spurningum fréttamanns í gær – Myndband
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað

Enn og aftur á meiðslalistanum – Meiðst tíu sinnum á sama stað
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“

Sögur um að sæti Jökuls í Garðabæ sé heitt þó mótið sé ekki enn hafið – „Menn eru bara í nettu áfalli“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna

Szoboszlai hjólar í sína menn fyrir frammistöðuna