fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Agaleysi á Akranesi og Ólafur segir: „Þetta er ekki eðlilegt“

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 14. maí 2021 09:07

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH tók á móti ÍA í 3. umferð Pepsi Max-deildar karla í gær. Heimamenn unnu að lokum stóran sigur gegn tíu leikmönnum gestanna. Skagamenn komust yfir með marki frá Gísla Laxdal Unnarssyni. Það gerði hann eftir fyrirgjöf frá Elias Tamburini.

Eftir tæpan hálftíma leik urðu gestirnir svo manni færri. Þá fékk Hákon Ingi Jónsson heimskulegt rautt spjald. Hann braut þá á Gunnari Nielsen, markverði FH, á gulu spjaldi. FH jafnaði strax í kjölfarið þegar Óttar Bjarni Guðmundsson gerði sjálfsmark. Staða í hálfleik var 1-1.

Gestunum tókst að halda FH í skefjum allt þar til á 82. mínútu. Þá skoraði Matthías Vilhjálmsson. Í kjölfarið var ekki aftur snúið fyrir Skagamenn. Ágúst Eðvald Hlynsson skoraði þriðja mark heimamanna á 88. mínútu og kláraði leikinn endanlega. Steven Lennon og Vuk Oskar Dimitrijevic bættu svo við mörkum í uppbótartíma. Lokatölur 5-1.

Rauða spjald Skagamanna kom liðinu illa en Hákon Ingi fékk tvö gul spjöld, í fyrstu umferð fékk Ísak Snær Þorvaldsson rautt spjalda. Agaleysi á Akranesi.

„Þetta er annar leikurinn þar sem þeir fá rautt spjald og bæði svona vitleysa. Það er hægt að segja að öll rauð spjöld séu vitleysa en stundum eru þau það ekki. Hvar er spennustig leikmanna?“ sagði Ólafur Jóhannesson sérfræðingur á Stöð2 Sport í Stúkunni í gær.

„Af hverju haga leikmennirnir sér svona? Þetta er ekki eðlilegt. Eins og þessi tvö spjöld, þetta er ekkert eðlilegt. Þú getur farið einu sinni í markvörðinn, þrumað í hann og svona, og þá hefurðu smá yfirburði yfir markverðinum næst þegar þú mætir honum en þetta er út í hött,“ sagði Ólafur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Útilokar ekki að Mbeumo verði áfram hjá Brentford

Útilokar ekki að Mbeumo verði áfram hjá Brentford
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Alls ekki smeykir fyrir verkefnið stóra í nótt

Alls ekki smeykir fyrir verkefnið stóra í nótt
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Undanúrslit bikarsins hefjast í kvöld – Nokkuð langt í seinni leikinn

Undanúrslit bikarsins hefjast í kvöld – Nokkuð langt í seinni leikinn
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Allar heilar fyrir stóru stundina

Allar heilar fyrir stóru stundina
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Óvænt stórlið hefur áhuga á Rashford – Er þó ekki efstur á blaði

Óvænt stórlið hefur áhuga á Rashford – Er þó ekki efstur á blaði
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Hér mæta Stelpurnar okkar Finnum á morgun – Yfir þúsund Íslendingar

Hér mæta Stelpurnar okkar Finnum á morgun – Yfir þúsund Íslendingar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Aron lýsir hremmingum á hótelherbergi sínu í Sviss – „Þið getið ímyndað ykkur aðstæðurnar“

Aron lýsir hremmingum á hótelherbergi sínu í Sviss – „Þið getið ímyndað ykkur aðstæðurnar“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Liverpool setur tvo mismunandi verðmiða á enska miðjumanninn

Liverpool setur tvo mismunandi verðmiða á enska miðjumanninn