Ryan Giggs gekk í gegnum skilnað seint á síðasta ári eftir að hafa verið sakaður um að leggja hendur á Kate Greville. Nú deila þau um hvort þeirra heldur hundi sem þau höfðu keypt sér skömmu fyrir skilnaðinn.
Lögreglan í Manchester hefur lokið rannsókn á meintri líkamsárás Ryan Giggs á fyrrum unnustu sína. Ákæruvaldið fer nú yfir málið og ákveður hvort gefin verði út ákæra á hendur Giggs.
Lögregla var kölluð til á heimili Giggs og Kate Greville í úthverfi Manchester í nóvember og var Giggs handtekinn á heimili sínu. Greville sakar hann um gróft líkamlegt ofbeldi.
Þau áttu nokkra hunda saman en ensk götublöð segja að rifrildi þeirra snúast aðalega um Mac sem er sex mánaða hvolpur.
Ensk blöð segja að lætin þeirra á milli hafi byrjað þegar hún ásakaði Giggs um að vera að halda framhjá sér og að konurnar væru tvær sem hann væri að hitta.
Framhjáhald væri ekki nýtt af nálinni í lífi Giggs. Giggs og Greville hafa verið saman síðustu ár en Giggs gekk í gegnum skilnað árið 2013 eftir að upp komst um framhjáhald hans til margra ára. Giggs hafði þá verið að sofa hjá eiginkonu bróður síns í átta ár.
Ensk blöð segja að Greville hafi komist í skilaboð í Ipad í eigu Giggs sem var tengdur við síma hans, þar gat hún skoðað skilaboð frá stelpum og er talað um að talsvert hafi verið daðrað í þeim skilaboðum. Greville þekkir konurnar, önnur starfar sem aðstoðarmanneskja knattspyrnumanna í London og hin er fyrirsæta sem býr nálægt þeim í Manchester.
Parið hafði verið að drekka saman í miðborg Manchester þegar þau komu heim á sunnudagskvöld, ensk blöð segja sambandið hafa lengi staðið á bláþræði fyrir atvikið en Kate flutti út af heimilinu degi eftir meinta árás.
Ákæruvaldið gefur sér til 1 maí til að taka ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út.