Manchester City hefndi fyrir 1-0 tap gegn Southampton í síðustu umferð gegn Newcastle United í kvöld.
City var í stuði á heimavelli og á sama tíma í engum vandræðum með gestina.
Meistarar síðasta árs unnu sannfærandi 4-0 sigur og eru nú níu stigum á undan Chelsea í þriðja sæti.
Burnley vann á sama tíma góðan útisigur á West Ham þar sem Jay Rodriguez gerði eina markið.
Evrópuslag Sheffield United og Wolves lauk þá með 1-0 sigri heimamanna í Sheffield.
John Egan skoraði eina mark leiksins með skalla á 93. mínútu í uppbótartíma.
Manchester City 4-0 Newcastle
1-0 Gabriel Jesus(10′)
2-0 Riyad Mahrez(21′)
3-0 Federico Fernandez(58′)
4-0 David Silva(65′)
West Ham 0-1 Burnley
0-1 Jay Rodriguez(38′)
Sheffield United 0-0 Wolves
1-0 John Egan(93′)