Norwich 1-2 Manchester United
0-1 Odion Ighalo(51′)
1-1 Todd Cantwell(75′)
1-2 Harry Maguire(118′)
Manchester United er komið áfram í enska bikarnum eftir leik við Norwich á útivelli í kvöld.
United komst yfir á 51. mínútu er framherjinn Odion Ighalo skoraði fyrsta mark leiksins.
Staðan var 0-1 þar til á 75. mínútu er Todd Cantwell jafnaði metin fyrir Norwich og staðan orðin 1-1.
Á 89. mínútu fékk Timm Klose beint rautt spjald hjá Norwich fyrir að rífa Ighalo niður sem var að sleppa einn í gegn.
Það var svo Harry Maguire á 118. mínútu framlengingar sem tryggði liðinu sigur og United komið í undanúrslit.