fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
433Sport

Stórstjarna braut reglur um útgöngubann með því að fá tvær vændiskonur heim til sín

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 5. apríl 2020 12:39

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kyle Walker, bakvörður Manchester City og enska landsliðsins hefur beðist afsökunar á því að hafa keypt þjónustu vændiskvenna í vikunni. Ensk blöð fjalla um málið og Walker hefur játað brot sitt.

Útgöngubann er í Bretlandi og því er það í raun ólöglegt að bjóða fólki heim til sín, reglurnar eru skýrar. Louise McNamara sem er 21 árs og stelpa frá Brasilíu sem er 24 ára mættu heimt til Walker á þriðjudagskvöld. Eftir að Walker hafði óskað eftir þjónustu þeirra var þeim keyrt heim til Walker, sem býr í úthverfi Manchester.

Hann borgaði stelpunum 2200 pund áður en haldið var inn í svefnherbergi, þær dvöldu á heimili Walker í þrjá og hálfa klukkustund. Tæpar 400 þúsund krónur sem Walker lét stelpurnar fá.

,,Kyle hefði átt að vita betur, hann bauð ókunnugum stelpum heim til sín og vildi kynlíf. Sama dag hafði hann ráðlagt fólki að halda sig heim,“ sagði Louise McNamara.

Walker sér eftir þessu og sendi frá sér yfirlýsingu. ,,Ég vil biðjast afsökunar á þeim ákvörðunum sem ég tók í síðustu viku. Ég skil að í stöðu minni sem atvinnumaður, þá ber ég ábyrgð og er fyrirmynd,“ sagði Walker.

,,Ég vil biðja fjölskyldu mína, vini, fótboltafélagið mitt og alla afsökunar, á að hafa brugðist þeim.“

Walker hefur mikið verið í fréttum en hann hélt framhjá unnustu sinni á síðasta ári og barnaði aðra konu þá, eftir það slitu þau hjónabandi sínu. ,,Við erum svekktir að heyra af þessum ásökunum í garð Kyle, málið verður skoðað innan félagsins,“ sagði Manchester City í yfirlýsingu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Mbappe yfirgefur hópinn

Mbappe yfirgefur hópinn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Viðar Örn sagður skrifa undir á næstu dögum – „Held að Heimir geti alveg blásið lífi í hann“

Viðar Örn sagður skrifa undir á næstu dögum – „Held að Heimir geti alveg blásið lífi í hann“
433Sport
Í gær

Erfiðir tímar og þungar ásakanir styrktu hjónabandið

Erfiðir tímar og þungar ásakanir styrktu hjónabandið
433Sport
Í gær

Þjálfari Portúgals kennir Heimi um rauða spjaldið

Þjálfari Portúgals kennir Heimi um rauða spjaldið
433Sport
Í gær

Fékk að mæta til æfinga eftir að hafa verið í sprengjusveit Chelsea

Fékk að mæta til æfinga eftir að hafa verið í sprengjusveit Chelsea
433Sport
Í gær

Jóhann Berg fór í hóp fimm góðra manna í gær – 80 prósent af þeim voru hluti af gullkynslóðinni

Jóhann Berg fór í hóp fimm góðra manna í gær – 80 prósent af þeim voru hluti af gullkynslóðinni