Timm Klose, varnarmaður Norwich í ensku úrvalsdeildinni birti mynd á Instagram í gær sem hefur vakið mikla athygli.
Klose ætlaði þá að láta stuðningsmenn sína vita að hann væri að horfa á Netflix í tölvunni, á meðan útgöngubann er í gangi á Englandi. Klose gleymdi hins vegar að loka glugga á skjánum, sem hann hefur líklega notað áður en hann fór að horfa á Netflix.
Einn stuðningsmaður Klose tók eftir því að gluggi með vinsælli netsíðu, þar sem finna má erótísk efni var enn í gangi.
Á þessum fordæmalausu tímum hefur Klose því verið að stytta sér stundir með því að skoða vefsíðu, sem margir þekkja.