fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
433Sport

Sindri segir „lúsera“ hugsunarhátt í Laugardalnum: Í Vesturbænum er öskrað á menn á bílastæðinu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 19. febrúar 2020 09:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sindri Snær Jensson, lagði hanskana á hilluna í vetur en hann hefur gefið af sér gott orð sem athafnamaður síðustu ár. Sindri er eigandi Húrra Reykjavík, Flatey Pizza og Yuzu, fataverslanir og veitingastaðir sem notið hafa mikilla vinsælda í Reykjavík.

Sindri var í KR frá 2014, hann var iðulega varamarkvörður en áður hafði hann leikið með Þrótti og Val.

,,Mig langaði alltaf að vera í KR, þegar ég var ungur að spila á móti KR þá langaði mig að vera í vonda liðinu,“ sagði Sindri í hlaðvarpsþættinum, Steve Dagskrá þar sem hann fór yfir ferilinn sem knattspyrnumaður og athafnamaður.

Sindri elskaði að vera í KR, þar var krafa á árangur sem honum finnst vanta í uppeldisfélag sitt, Þrótt.

,,Krafan um að árangur er eitthvað sem ég dýrkaði, ég kemur úr Þrótti. Með fullri virðingu, þá er það smá lúsera klúbbur. Við töpuðum þar og þá var bara sagt að þetta kæmi næst.  Í KR er bara gaur að öskra á mig á bílastæðinu, af hverju ég hafi ekki varið þetta skot. Fólk er reitt“

Sindri segir kröfuna um árangur í Vesturbæ hafa gert mikið fyrir sig.

,,Við eigum alltaf að vinna, það er varla stuðningur við liðið nema að við séum búnir að skora Það er góður stuðningur en um leið og við skorum, er það miklu meira. Ég dýrkaði þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea

Arsenal óvænt farið að eltast við kantmann Chelsea
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega

Þjálfari Finna ræddi hætturnar í liði Íslands og nefndi Sveindísi sérstaklega
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“

Karólína: „Við erum allar bestu vinkonur“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn

Gæti eitthvað farið að gerast hjá Liverpool varðandi Isak – Þetta gæti orðið verðmiðinn
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag

Búist við að Jón Daði verði kynntur í dag
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Duran aftur til Evrópu

Duran aftur til Evrópu