West Ham United gerði góða ferð til Sheffield og vann 0-1 sigur á heimamönnum í Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikið var á Bramall Lane.
Sébastien Haller skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu. Aaron Ramsdale, markvörður Sheffield náði að slæma hendinni í boltann en þó ekki nógu mikið til þess að bjarga marki.
West Ham er eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með 14 stig eftir 9 leiki. Sheffield United er á botni deildarinnar í 20. sæti með 1 stig.
Sheffield United 0 – 1 West Ham United
Sébastien Haller (’56)