Staðarblaðið, Giornale di Brescia fullyrðir að Birkir Bjarnason sé að ganga í raðir Bresica. Íslendingavaktin sagði fyrsta frá.
Birkir verður þar með liðfélagi Mario Balotelli sem gekk í raðir félagsins síðasta sumar.
Brescia er í 19 sæti í Seriu A með 14 stig og í fallsæti. Birkir hefur lekikið með Pescara og Sampdoria á Ítalíu.
Birkir var sterklega orðaður við Genoa en mun skrifa undir hálfs árs samning með möguleika á einu ári til viðbótar.
Birkir rifti við Aston Villa síðasta haust og lék í nokkra mánuði með Al-Arabi í Katar