Piero Ausilio, stjórnarmaður hjá Inter er á leið til Lundúna og ætlar reyna að kaupa Christian Eriksen frá Tottenham.
Inter vill fá Eriksen nú í janúar annars fer hann frítt frá Tottenham næsta sumar.
Tottenham er tilbúið að selja hann og er sagt að Inter sé tilbúið að borga 12 milljónir punda.
Líkur eru á að Tottenham taki slíku boði til að koma í veg fyrir að Eriksen fari frítt.
Sá danski telur Tottenham ekki borga nógu góð laun og hefur viljað fara síðustu mánuði.