Stærsti vinningur sem komið hefur til Íslands í Getraunum kom í gærkvöldi á sunnudagsseðlinum. Vinningurinn kom á miða sem er keypur í sölukassa.
Íslendingur því einn með 13 rétta og fær rúmlega 62 milljónir króna í sinn hlut með öllum aukavinningum, skattfrjálst.
Vinningshafinn ekki hefur gefið sig fram en ætla má að allir sem keyptu miða skoði nú seðlana sína.
Hér að neðan má sjá seðilinn sem þessi öflugi tippari tók og pakkaði saman.