Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, hefur staðfest það að hann vilji selja Real Madrid stórstjörnu næsta sumar.
Pogba er sjálfur reglulega orðaður við Real en hvort hann sé sáttur hjá Manchester United er ekki víst.
Raiola er í góðu sambandi við stjórn Real og hann vill láta félagið fá alvöru leikmann næsta sumar.
,,Samband mitt við Real Madrid er oft mjög gott. Ég ræði reglulega við Jose Angel Sanchez [stjórnarformann]. Það er mjög áhugavert að tala við hann um fótbolta og efni tengd FIFA,“ sagði Raiola.
,,Einn daginn vona ég að ég geti látið Real hafa sigurvegara. Eins og staðan er þá er ég með Alphonse Areola en hann er á láni frá PSG.“
,,Í sumar þá vil ég láta Real fá stórstjörnu endanlega. Það myndi gera mig stoltann og alla mína leikmenn því Real er frábært lið.“