fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
433Sport

Geir Þorsteinsson nýr framkvæmdastjóri ÍA

Victor Pálsson
Laugardaginn 21. mars 2020 17:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Geir Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA (KFÍA) og tekur hann við starfinu af Sigurði Þór Sigursteinssyni. Geir hefur áratuga reynslu á sviði stjórnunar, fjármála, reksturs og félagsmála en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri KR auka þess að starfa sem þjálfari yngri flokka og dómari. Geir var framkvæmdastjóri Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) frá 1997-2007 og formaður KSÍ 2007-2017.

Hann hefur setið í nefndum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu UEFA frá 1998 og Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA frá 2007. Undanfarið hefur Geir sinnt sérstökum verkefnum fyrir Knattspyrnusamband Evrópu og Alþjóða knattspyrnu-sambandið.

Eftir áhugaverð störf að knattspyrnumálum utan Íslands er gott að vera kominn aftur í íslenska boltann. Knattspyrnufélag ÍA er leiðandi félag í íslenskri knattspyrnu sem stefnir á toppinn. Ég hlakka til að takast á við krefjandi áskoranir í góðu samtarfi við félagsmenn og stuðningsmenn ÍA“ segir Geir Þorsteinsson um nýtt verkefni sitt sem framkvæmdstjóri Knattspyrnufélags ÍA.

Stjórn KFÍA vill þakka Sigurði Þór Sigursteinssyni fyrir hans frábæra starf fyrir félagið og óskar honum alls hins besta á nýjum vettvangi. Sigurður Þór hefur látið til sín taka hjá félaginu svo eftir verður tekið til komandi ára.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Liverpool skellir háum verðmiða á Kelleher

Liverpool skellir háum verðmiða á Kelleher
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrsta tilboði City verður hafnað

Fyrsta tilboði City verður hafnað
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Liverpool búið að setja nýtt tilboð á borðið í Wirtz – 109 milljónir punda

Liverpool búið að setja nýtt tilboð á borðið í Wirtz – 109 milljónir punda
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Þetta loforð Arne Slot varð til þess að Wirtz valdi Liverpool

Þetta loforð Arne Slot varð til þess að Wirtz valdi Liverpool
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Umboðsmaður Bruno fundaði í Sádí – Hann er sagður hugsa málið

Umboðsmaður Bruno fundaði í Sádí – Hann er sagður hugsa málið
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Gregg Ryder safnaði fleiri stigum í pokann en Óskar Hrafn hefur gert í sumar

Gregg Ryder safnaði fleiri stigum í pokann en Óskar Hrafn hefur gert í sumar