Neymar, leikmaður PSG, skoraði fyrra mark liðsins í kvöld í leik gegn Borussia Dortmund.
PSG er komið áfram í næstu umferð keppninnar en liðið vann 2-0 sigur og fer samanlagt áfram 3-2.
Neymar ákvað að fagna eins og Erling Haaland eftir markið en hann fékk það fagn frá Mohamed Salah.
Haaland er einmitt á mála hjá Dortmund og þurfti að sjá Neymar taka fagnið með berum augum.
Þetta má sjá hér.
Neymar recreates Haaland’s celebration. pic.twitter.com/0ankqJPHJv
— Press Record Videos (@PressRecordVid) 11 March 2020