Liverpool fær sterka leikmenn til baka úr meiðslum á morgun þegar liðið heimsækir Norwich í ensku úrvalsdeildinni.
Sadio Mane, einn besti maður liðsins er klár í slaginn eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum.
Sömu sögu er að segja af harðhausnum, James Milner sem hefur misst út en er byrjaður að æfa á fullu.
Xherdan Shaqiri, Nathaniel Clyne og Paul Glatzel eru frá vegna meiðsla en aðrir eru klárir.
Liverpool nær 25 stiga forskoti á toppi deildarinnar með sigri á Carrow Road á morgun.