Callum Hudson-Odoi, ungur leikmaður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Þetta var staðfest í gær en Hudson-Odoi hefur lengi verið í viðræðum við félagið.
Bayern Munchen reyndi að fá kappann í janúar og var hann nálægt því að fara til Þýskalands.
Hudson-Odoi hefur nú gert fimm ára samning við Chelsea sem eru gleðifréttir fyrir félagið.
Það er magnað að hugsa tli þess að Hudson-Odoi sem hefur lítið sannað mun þéna 180 þúsund pund á viku.
Í gegnum árin hækka launin svo upp í 200 þúsund pund á viku sem er svakaleg tala fyrir ungan 18 ára dreng.