Emmanuel Adebayor, fyrrum leikmaður Arsenal og Manchester City, kom sér í fréttirnar í gær.
Adebayor leikur í dag fyrir lið Kayserispor í Tyrklandi en hann er orðinn 35 ára gamall. Hann átti áður farsælan feril á Englandi.
Eftir Instagram færslu í gær fékk framherjiinn að heyra það frá eigin aðdáendum – hann tók ekki vel í það.
Það er óhætt að segja að Adebayor hafi hagað sér eins og hálfviti miðað við svörin sem hann bauð upp á.
Adebayor lét skapið hlaupa með sig í gönur og ákvað að svara aðdáendum fullum hálsi á Instagram.
,,Ég er 35 ára gamall og get keypt fjölskylduna þína til að vinna fyrir mig,“ sagði Adebayor á meðal annars.
Önnur fáránleg svör hans má sjá hér.