Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, býst við að fá Chris Smalling aftur til félagsins næsta sumar.
Smalling var lánaður til Roma í sumar og hefur staðið sig virkilega vel á Ítalíu.
,,Hann er strákur sem gat ekki verið hérna án þess að vera lykilmaður svo við tókum þessa ákvörðun,“ sagði Solskjær.
,,Ég er svo ánægður fyrir hans hönd því við getum séð hversu mikill toppleikmaður hann er.“
Solskjær var svo spurður út í hvort hann væri að búast við að Smalling myndi snúa aftur: ,,Já,“ var svarið.