Íslenska landsliðið er komið til Tyrklands þar sem liðið undirbýr sig fyrir landsleikina gegn Tyrklandi og Moldóvu. Ísland þarf að vinna báða leikina til að eiga veika von á sæti á EM. Liðið þarf að treysta á að Andorra taki stig gegn Tyrkjum til að liðið fljúgi beint inn á mótið. Annars er það umspil í mars, sem getur komið liðinu á sitt þriðja stórmót.
Fyrsta alvöru æfing liðsins fór fram í Antalya í gær en fréttamaður okkar er á leið til Tyrklands og kemur með allt það nýjasta fyrir okkur.
Fótbolti.net kom til Tyrklands um helgina og fékk viðtal við Kolbein Sigþórsson, markahæsta leikmann í sögu Íslands. Fyrir viðtalið fékk Elvar Geir Magnússon, ritstjóri vefsins skipun frá fjölmiðlafulltrúa KSÍ. ,,Fyrir viðtalið fengu fjölmiðlar þó þær upplýsingar frá starfsmönnum KSÍ að ekki mætti spyrja út í þann fréttaflutning að Kolbeinn hefði verið handtekinn í Svíþjóð á dögunum eftir læti á skemmtistað,“ skrifar Elvar á Fótbolta.net.
Fréttablaðið sagði frá því fyrir tæpum tveimur vikum að Kolbeinn hafi verið handtekinn á næturlífinu í Stokkhólmi, þar sem hann spilar með AIK. Málið vakti mikla athygli en enginn hefur viljað tjá sig um það. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DV hefur undir höndum, var Kolbeinn rangur maður á röngum stað, á röngum tíma. Hann var ekki sökudólgur í þeim látum sem áttu sér stað þessa örlagaríku nótt.