fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
433Sport

Kynntist stjörnu Barcelona sem fær að heyra það: ,,Hann er eins og lítið barn“

Victor Pálsson
Miðvikudaginn 11. september 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kevin-Prince Boateng, leikmaður Fiorentina, talar ekki vel um Ousmane Dembele, leikmann Barcelona.

Boateng lék með Barcelona í nokkra mánuði á síðustu leiktíð og kynntist þar franska landsliðsmanninum.

Dembele er oft ásakaður um að haga sér ófagmannlega og tekur Boateng alveg undir þær sögur.

,,Dembele er eins og krakki að mínu mati. Þú þarft að taka honum eins og hann er,“ sagði Boateng.

,,Hann mætir seint á æfingu af og til. Það eru leikmenn sem gera það viljandi en hann er öðruvísi. Hann er eins og lítið barn.“

,,Dembele er ekki bara vandamálið, ungir leikmenn eru að þéna alltof mikið. 18 ára gamall strákur á ekki að fá fjórar milljónir evra á ári.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Innbrotsþjófar sem rændu fyrir 200 milljónir borga 167 krónur í sekt fyrir það

Innbrotsþjófar sem rændu fyrir 200 milljónir borga 167 krónur í sekt fyrir það
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Fyrrum starfsmaður City segir að stóri dómurinn falli á næstunni

Fyrrum starfsmaður City segir að stóri dómurinn falli á næstunni