Alfreð Finnbogason framherja Augsburg snýr aftur á völlinn gegn Union Berlin um helgina. Þetta eru góð tíðindi fyrir Alfreð og landsliðið.
Framherjinn hefur ekkert spilað síðan á síðustu leiktíð þegar hann meiddist nokkuð illa.
Nú er ljóst að Alfreð hefur náð fullri heilsu, ef hann helst heill getur hann spilað gegn Moldavíu og Albaníu í september.
,,Ég hef æft að fullu síðustu þrjár vikur með liðinu, markmiðið var alltaf þessi leikur,“ sagi Alfreð.
,,Það er raunhæft markmið að spila á laugardag. Mér líður mjög vel og vonandi get ég sýnt stuðningsmönnum það.“