Kristján Jónsson, blaðamaður á Morgunblaðinu skrifar áhugaverðan bakvörð í blað dagsins. Þar fer hann yfir afsökunarbeiðni sem Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA setti fram um helgina.
Bjarki Steinn Bjarkason, ungur leikmaður liðsins var þá tekinn af velli í fyrri hálfleik. Eitthvað sem ekki gerist oft í fótbolta, séu leikmenn heilir heilsu.
Jóhannes var hins vegar smeykur við sterkt lið Breiðabliks og vildi ekki bíða með að breyta, þetta telur Kristján eðlilegan hlut.
,,Hvers vegna er þjálfari að biðja leikmann afsökunar á því að hann ætli að gera breytingar? Jú vegna þess að í knattspyrnunni er löngu búið „að ákveða“ að ekki skuli skipta mönnum út af fyrir hlé nema um meiðsli eða veikindi sé að ræða,“ skrifar Kristján í blað dagsins.
,,Fyrir því er að sjálfsögðu enginn vitsmunalegur rökstuðningur. Þetta er bara dæmi um dellu sem getur orðið til í íþróttunum og venjan er orðin sú að leikmenn eru ekki teknir út af fyrr en eftir hlé.“
Gunnar Birgisson fréttamaður á RÚV, sagði í hlaðvarpi Fótbolta.net að þetta væri niðurlægjandi fyrir Bjarka.
,,Fréttamaður RÚV sagði í hlaðvarpi að þetta hafi verið niðurlægjandi fyrir leikmanninn. Það kann vel að vera. Einmitt vegna þess að þessu eiga menn ekki að venjast. Knattspyrnuheimurinn er íhaldssamari en lávarðadeild breska þingsins.“
,,Ég hef enga trú á öðru en að snjallir þjálfarar sjái eftir 25 mínútur í leikjum hvort leikmenn séu vel upplagðir eða ekki. Ef einhver er það ekki, eða ræður ekki við andstæðinginn sem hann á að stöðva, hvers vegna að bíða með skiptinguna? Svo framarlega sem þjálfarinn hefur trú á varamönnum sínum.“