Það gæti komið mörgum á óvart að Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, vill halda varnarmanninum Marcos Rojo.
Rojo fékk mjög takmarkað að spila á leiktíðinni en þessi 29 ára gamli leikmaður á þó framtíð fyrir sér á Old Trafford.
Hann ræddi við Solskjær eftir síðasta leik tímabilsins og vill Norðmaðurinn halda honum á næstu leiktíð.
,,Eins og staðan er þá vil ég vera hér áfram,“ sagði Rojo við El Dia.
,,Ég ræddi við stjórann fyrir lok tímabilsins og við töluðum um hans plön þegar kemur að mér.“
,,Hann sagði að ég væri hluti af hans plönum, að ég væri mikilvægur leikmaður og hann vill sjá mig komast í mitt besta form og treysta á mig í byrjunarliðinu.“