Neil Warnock, stjóri Cardiff, hefur gagnrýnt sóknarmanninn Mo Salah sem spilar með Liverpool.
Þetta gerði Warnock eftir 2-0 gegn Liverpool í dag en seinna mark gestanna kom úr vítaspyrnu eftir að Salah féll í grasið.
,,Við spiluðum mjög vel gegn liði sem er ekki með veikleika, þeir eru með gæði út um allan völl,“ sagði Warnock.
,,Heilt yfir var ég ánægður með leikmennina, við gerðum þetta að góðum leik en erum vonsviknir með að sumir hlutir hafi ekki fallið með okkur.“
,,Ég taldi að Sean Morrison hafi verið rifinn niður af Andy Robertson í skallaeinvígi og svo gaf hann víti sem hann þurfti ekki að gera.“
,,Þetta var þó dýfa upp á 9,9 hjá honum, er það ekki?“