fbpx
Laugardagur 21.mars 2026
433

Pogba meiddur og spilar ekki gegn Liverpool

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 10. mars 2018 11:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United tekur á móti Liverpool í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag klukkan 12:30 og eru byrjunarliðin klár.

Paul Pogba, miðjumaður Manchester United er ekki í hóp hjá liðinu í dag en enskir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi meiðst á æfingu liðsins í gær.

Miðjumanninum tókst ekki að klára æfinguna og hann mætti ekki með liðsfélögum sínum á Lowry hótelið í gær fyrir leikinn mikilvæga.

Það verða þeir Nemanja Matic, Scott McTominay og Juan Mata sem munu spila á miðjunni hjá United gegn Liverpool í dag en byrjunarliðin voru tilkynnt núna rétt í þessu.

Manchester United er í öðru sæti deildarinnar með 62 stig, tveimur stigum meira en Liverpool sem er í þriðja sætinu og því ljóst að það verður hart barist á Old Trafford í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United

Vilja bjóða honum betri samning vegna áhuga frá United
433Sport
Í gær

Hafna tilraunum Börsunga

Hafna tilraunum Börsunga
433Sport
Í gær

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik

Íslendingarnir nálægt endurkomu en eru úr leik
433Sport
Í gær

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell

Hákon og félagar töpuðu í Birmingham – Sverrir fékk skell