Jose Mourinho, stjóri Manchester United, var ánægður með sína menn í kvöld eftir 3-0 sigur á Young Boys.
United vann nokkuð sannfærandi sigur að lokum en Young Boys átti þó sín færi og ógnaði marki enska liðsins.
Mourinho var ekki mikið fyrir það að hrósa Young Boys eftir leikinn og segir að öll lið riðilsins muni fá sex stig gegn þessu liði.
,,Það var mikilvægt að vinna, ég held að öll lið í þessum riðli muni fá sex stig gegn Young Boys svo það var mikilvægt að sóa því ekki,“ sagði Mourinho.
,,Nú eigum við tvo leiki gegn Juventus og leik við Valencia þar sem við verðum að fá stig til að komast áfram.“