fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
433

Myndir: Karius var fljótur að koma sér í sumarfrí

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 28. maí 2018 11:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Real Madrid fagnaði sigri í Meistaradeild Evrópu um helgina en liðið mætti Liverpool í úrslitum í Úkraínu.

Leikurinn byrjaði fjöruglega en eftir aðeins hálftíma þurfti lykilmaður Liverpool, Mohamed Salah, að yfirgefa völlinn meiddur. Mikið áfall fyrir Liverpool en stuttu síðar missti Real mann af velli eftir meiðsli, bakvörðinn Dani Carvajal. Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en snemma í þeim síðari komust spænsku risarnir yfir. Loris Karius gerði sig þá sekan um hörmuleg mistök í marki Liverpool er hann kastaði boltanum nánast í Karim Benzema sem skoraði.

Sadio Mane jafnaði þó fyrir Liverpool skömmu síðar eftir hornspyrnu og entist forysta Real í aðeins fjórar mínútur. Þá var röðin komin að varamanninum Gareth Bale sem kom inná sem varamaður á 61. mínútu leiksins.

Þremur mínútum eftir það skoraði Bale stórkostlegt hjólhestaspyrnumark eftir fyrirgjöf Marcelo. Bale bætti svo við öðru marki á 83. mínútu með föstu skoti fyrir utan teig sem Karius hefði átt að verja en hann missti boltann inn.

Karius var lítll í sér eins og eðlilegt er en hann yfirgaf Liverpool nokkrum klukkustundum eftir að hann kom heim frá úrslitaleiknum.

Karius fær nú gott sumarfrí en myndir af honum eru hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín

Hrun Liverpool er áhugavert – Svona var staðan í lok janúar þegar Klopp kynnti áform sín
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu

Solskjær með áhugavert tilboð á borði sínu
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir

Pungurinn virkar ennþá hjá Giggs – Fimmtugur og er að verða faðir
433Sport
Í gær

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik

Mjólkurbikarinn: Breiðablik óvænt úr leik
433Sport
Í gær

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton

England: Meistararnir í engum vandræðum með Brighton