,,Það er alltaf spenna þegar það fer að styttast í mót,“ sagði Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH við 433.is.
FH hefur leik í Pepsi deild karla á laugardag þegar liðið heimsækir Grindavík. FH er með nýjan þjálfara í brúnni, Ólafur Kristjánsson tók við liðinu í vetur.
,,Óli er virkilega fær þjálfari, auðvitað hefur það tekið smá tíma að venjast hans aðferðum og hugmyndafræði. Hvernig hann vill spila leikinn, ég held að við munum verða sterkari eftir því sem líður á tímabilið.“
FH hefur fengið marga nýja leikmenn, er þá meiri ábyrgð á fyrirliðanum að koma mönnum inn í hlutverkin?
,,Þeir leikmenn sem við höfum fengið, við fyrstu sýn eru með góðan fótboltaheila. Það er minna sem þarf að hafa áhyggjur af, það er meira að hafa áhyggjur af þeim utan vallar. Þetta eru allt vitleysingar.“
Viðtalið er í heild hér að neðan.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=oQXBJpo3zew]