fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Sport

Ítarlegt viðtal við Gylfa – Góðs viti að Everton gafst aldrei upp

Gylfi er dýrasti leikmaður í sögu Everton – Setur pressuna á sig sjálfur

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 21. ágúst 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Þór Sigurðsson varð á miðvikudag dýrasti leikmaður í sögu Everton þegar félagið borgaði 45 milljónir punda eða 6,3 milljarða íslenskra króna fyrir kappann sem kom frá Swansea. Hjá Swansea hafði Gylfi átt þrjú mjög góð ár en nú tekur hann skrefið upp á við, Everton er klúbbur sem er í mikilli sókn og ætlar sér stóra hluti á næstu árum.

„Loksins er þetta komið. Nú er kominn tími til að koma sér í alvöru leikform og spila leiki,“ sagði Gylfi um málið þegar 433.is ræddi við hann rétt eftir að hann hafði skrifað undir samninginn.

Á tímapunkti leit út fyrir að félagaskiptin myndu ekki fara í gegn enda tóku viðræðurnar mikinn tíma, mun meiri tíma en menn höfðu átt von á. Gylfi segir að það hafi tekið mikið á þolinmæðina að sitja og bíða þess að eitthvað gerðist.

„Þetta er búið að taka þvílíkt langan tíma, þetta er búið að taka rosalega á þolinmæðina og búið að vera erfitt ferli síðustu vikur; hvort þetta færi loksins í gegn eða hvort ekkert yrði úr þessu. Það voru dagar þar sem maður hélt að það yrði ekkert úr þessu, sem betur fer var Everton mjög þolinmótt og gafst aldrei upp,“ sagði Gylfi en það segir margt um það hversu mikinn áhuga Everton hafði, að þrátt fyrir að viðræðurnar hafi tekið fleiri vikur þá gafst félagið aldrei upp.

„Það er frábært hversu mikinn áhuga þeir höfðu, það er góðs viti að þeir gáfust aldrei upp og sýndu mikinn áhuga. Þeir ætluðu aldrei að hætta við þrátt fyrir að viðræður hefðu gengið illa. Ef ég á að segja alveg eins og er þá var Everton það eina sem heillaði mig frá byrjun, það var áhugi frá þeim síðasta sumar. Eftir það var Everton í raun eina liðið sem ég hafði áhuga á að fara í.“

Mikill metnaður Í Everton

Everton ætlar sér stóra hluti á næstu árum en félagið hefur verslað mikið í sumar og þar á meðal Wayne Rooney, markahæsta leikmann í sögu Manchester United og enska landsliðsins. „Það er mikill metnaður hérna, þú sérð það á leikmannakaupunum að það er mikill metnaður. Það er verið að kaupa leikmenn til að styrkja allan hópinn, það verða fleiri leikir hjá liðinu í ár ef það kemst í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Þú þarft því breiðari hóp, það er búið að kaupa mjög góða leikmenn og vonandi heldur klúbburinn áfram að styrkja sig eins og þarf.“

Fékk loksins samning hjá Everton

Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Everton, hefur lengi reynt að kaupa Gylfa, fyrst til Southampton og nú til Everton. Gylfi þekkir einnig til hjá Everton en 13 ára gamall æfði hann í tvígang hjá félaginu en fékk ekki samning. „Þjálfarinn heillaði mig mikið, hann er búinn að hafa áhuga á mér í nokkur ár. Klúbburinn heillaði svo líka. Það er mikil uppbygging í kringum klúbbinn og liðið, það allt hélst í hendur. Ég kom á reynslu til Everton þegar ég var 12 eða 13 ára, ég var í FH á þeim tíma. Ég kom tvisvar hingað á reynslu á þeim tíma en fékk loksins samning hjá þeim núna. Everton hafði áhuga fyrir ári en á því augnabliki fannst mér best í stöðunni að taka eitt ár í viðbót með Swansea, spila vel annað tímabil og það gekk vel persónulega. Mér fannst núna réttur tími til að taka næsta skrefið á ferlinum.“

Gengur sáttur frá borði hjá Swansea

Gylfi lék í þrjú ár með Swansea og hefur skrifað nafn sitt í sögubækur félagsins, hann er líklega besti leikmaðurinn sem félagið hefur haft en hann er markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar hjá Swansea. „Þrátt fyrir að það hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel, eins og við höfðum vonast til á síðustu tveimur tímabilum, þá gekk mér vel persónulega. Ég held að það hafi verið mjög góð ákvörðun að fara til Swansea og spila reglulega. Koma mér í gang og það hefur gengið vel.“

Erfitt að æfa þegar maður vill ekki meiðast

Gylfi hefur æft með Swansea síðustu vikur án þess að spila æfingarleiki en allir aðilar vildu að þetta færi í gegn, miklir peningar voru í húfi fyrir Swansea en það hefur tekið á fyrir Gylfa að halda sér í formi. „Það hefur verið erfitt en ég hef æft á fullu með liðinu og U23 ára liðinu þegar aðalliðið fór til Bandaríkjanna. Það er erfitt að æfa á fullu þegar maður vill alls ekki meiðast, það hefur gengið ágætlega. Ég er í fínu æfingarformi en þarf að spila leiki.“

Pressan kemur frá honum sjálfum

Gylfi segir að hann finni ekki fyrir auka pressu þrátt fyrir að vera dýrasti leikmaður í sögu Everton, hann segir að samkeppnin hjá Everton muni bæta hann sem leikmann. „Þannig séð finnst mér ekki vera pressa, ég hef lítið um þetta að segja. Ég set sjálfur á mig mikla pressu um að standa mig eins og ég hef gert síðustu ár, ég vil halda því áfram. Það er eina pressan sem kemur. Ég held að það geri ekkert annað en að bæta mann að vera í svona samkeppni og það er kannski ekkert of gott að vera í umhverfi þar sem þú er of öruggur með sjálfan þig. Það er gott að komast í mikla samkeppni og spila með mjög góðum leikmönnum.“

Frumraunin á mánudag

Gylfi mun á mánudag spila sinn fyrsta leik fyrir Everton þegar liðið mætir Manchester City en það er þó ekki líklegt að Gylfi verði með frá byrjun. „Ég held að ég verði eitthvað með, ég býst ekki við að byrja. Ég held að það sé aðeins of snemmt en maður sér til hvað gerist.“

Fagnar því að peningurinn fari heim

Með félagaskiptum Blika koma miklir fjármunir heim, Breiðablik fær um 57 milljónir í samstöðubætur og FH um 31 milljón. Þessu fagnar Gylfi. „Það er frábært að þessi peningur fari heim og vonandi geta þessi félög nýtt þetta í eitthvað gott, það er gott að þessi peningur fari heim í tvö félög. Ég held að þetta sé mjög jákvæður hlutur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla

Ashworth hefur fengið alveg nóg og fer með málið til dómstóla
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið

Segir Roy Keane vera risaeðlu eftir ummæli hans um hlaðvarpið
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“

Van Dijk vonar að Liverpool ráði landa sinn – ,,Einn af þeim bestu“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“

Betri en bæði Lampard og Gerrard – ,,Númer eitt fyrir mér“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“

Málverk stjörnunnar vekur mikla athygli: Byrjaður að reyna fyrir sér sem listamaður – ,,Sá aðili hringdi aldrei í mig aftur“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni

KR fékk miðjumann úr sænsku úrvalsdeildinni
433Sport
Í gær

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
433Sport
Í gær

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall

Fær óvænt tækifærið aðeins 34 ára gamall