Höfundar teiknimyndanna vinsælu skjóta fast á Donald Trump og fyrstu 100 daga hans í embætti
Teiknimyndirnar um Simpsons fjölskylduna hefur verið í loftinu í hartnær þrjá áratugi en ný Simpsons-stuttmynd birtist á netinu á fimmtudag í tilefni að fyrstu hundrað dögum Donalds Trump í embætti Bandaríkjaforseta. Óhætt er að segja að höfundarnir séu óvenju umdeildir og beittir í stiklunni sem sýnir meðal annars Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins, hanga í snöru með miða á sér sem skrifað er á: „Ég er hættur.“
Kellyanne Conway hleypur í óðagoti út og lýsir því yfir að hún ætli sér ekki að taka við starfi Spicers.
Mörgum mun ekki finnast þessi nálgun The Simpsons smekkleg en hafa ber í huga að þættirnir hafa oft reynst sannspáir. T.d. var grínast með það í þætti frá árinu 2000 að Donald Trump hefði náð kjöri sem forseti Bandaríkjanna og að Lisa Simpson næði kjöri sem eftirmaður hans.
Stuttmyndina umdeildu má sjá hér fyrir neðan: