fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Landafræðikennarinn neyddist til að hætta: 14 ára nemandi gróf upp vafasama fortíð hennar

„Okkur er öllum brugðið. Við gátum ekki ímyndað okkur að kennari við skólann myndi gera svona“

Einar Þór Sigurðsson
Föstudaginn 15. apríl 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landafræðikennari sem kenndi grunnskólabörnum í skóla einum í Rúmeníu hefur verið rekin úr starfi eftir að í ljós kom að hún hafði starfað á öðrum og öllu vafasamari vettvangi en við kennslu.

Kennarinn, hin 27 ára Georgiana, kenndi landafræði í grunnskóla í bænum Prisacani. Í ljós kom að hún hafði leikið í klámmyndum, en fjórtán ára nemandi hennar rakst á myndbönd og myndir af henni á veraldarvefnum. Nemandinn deildi efninu með skólafélögum sínum þaðan sem það komst í hendur stjórnenda skólans.

Í fréttum rúmenskra fjölmiðla, sem breska blaðið Mirror vitnar til, kemur fram að skólastjórinn, Mariana Catrina, hafi hafið rannsókn á málinu. „Okkur er öllum brugðið. Við gátum ekki ímyndað okkur að kennari við skólann myndi gera svona,“ segir Mariana sem bætir við að viðbrögð kennarans í fyrstu hafi verið þau að halda því fram að myndirnar væru falsaðar.

„Við lítum þetta mál alvarlegum augum enda stríðir það gegn siðareglum skólans,“ segir Mariana. Þá er haft eftir ónafngreindu foreldri barns við skólann að það sé í sjálfu sér ekkert athugavert við það að fólk kjósi sér þann starfsvettvang sem því hentar. „En þú getur ekki unnið við að kenna grunnskólabörnum á sama tíma,“ segir umrætt foreldri.

Skólayfirvöld buðu Georgiönu að segja upp störfum sem hún og gerði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fókus
Fyrir 8 klukkutímum

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings

Prófaðu þetta næst þegar þú getur ekki sofið vegna fótapirrings
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“

Hraunaði yfir eigin leikmann í beinni útsendingu og lét allt flakka: Vinsæll en á ekki skilið mínútur – ,,Brást okkur öllum“
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“