Skulda Tékkum ríflega 31 milljarð króna
Kúbönsk stjórnvöld hafa nú gert Tékkum athyglisvert tilboð um hvernig haga beri greiðslum á margmilljarða skuldum hinna fyrrnefndu við Tékkland. Þau bjóða nú að jafna skuldina með kúbönsku rommi.
Kúba skuldar Tékklandi ríflega 31 milljarð króna en skuldina má rekja til Kalda stríðsins. Á þeim tíma lánaði forveri Tékklands, Tékkóslóvakía, Kúbu háar fjárhæðir en bæði ríkin voru hluti af valdablokk kommúnista fyrir fall Sovétríkjanna og járntjaldsins í Evrópu.
Tékkneska fjármálaráðuneytið staðfestir að stjórnvöld í Havana hafi boðið þessa greiðslutilhögun í nýlegum viðræðum um hvernig best væri að jafna skuldina. Ef Tékkar myndu fallast á tilboðið myndi það þýða nægt romm fyrir landsmenn í meira en öld. Tékknesk stjórnvöld hafa þó lýst því að þau vilji fá að minnsta kosti hluta af skuldinni greidda með peningum. Gallinn er sá að Kúba á ekki mikið að þeim, en nægt romm hins vegar.