fbpx
Laugardagur 02.ágúst 2025
Fréttir

Niðurgrafnir gámar fundust á Suðurlandi: Húsleitir á sex stöðum – Tveir handteknir

Ritstjórn DV
Föstudaginn 21. desember 2018 12:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í byrjun vikunnar fóru lögreglumenn frá Lögreglunni á Suðurlandi og lögreglumenn frá fíkniefnadeild Lögreglu höfuðborgarsvæðisins í húsleitir á 6 stöðum í Rangárvallasýslu vegna gruns um að þar færi fram umtalsverð ræktun á kannabisplöntum.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að leitað hafi verið í tveimur niðurgröfnum gámum sem voru þannig útbúnir að búið var að byggja smáhýsi ofan á þá til að fela ummerki um loftræstingu og annað sem tilheyrir ræktun kannabisplantna. Í gámunum fundust leifar af kannabisafskurði og ummerki um ræktun.

Þá var leitað í uppsteyptum kjallara annars óbyggðs sumarhúss og voru sömuleiðis þar ummerki um ræktun kannabisplantna á rúmlega 100 fermetra gólffleti.   Einnig var leitað í sumarhúsi og stöðugám þar við. Í sumarhúsinu var ekkert að sjá en í gámnum fundust 15 kannabisplöntur í ræktun.

Loks var leitað á heimili manns sem var handtekinn í tengslum við rannsóknina og framvísaði hann búnaði, við húsleit á heimili hans, tengdum ræktun kannabisplantna. Sá kannaðist við að vera eigandi ræktunarinnar í gámnum við sumarhúsið.

Niðurgröfnu gámarnir tveir og kjallarinn sem leitað var í voru samtengdir með myndavélaeftirlitskerfi. Tveir voru handteknir í aðgerðunum og var annar þeirra með sýn á myndavélarnar í síma sínum þegar lögregla handtók hann.   Hann kvaðst hinsvegar hafa eftirlitshlutverk með höndum hvað eignirnar varðaði og vildi ekki kannast við aðild að ræktununum. Báðum var sleppt að yfirheyrslu lokinni. Áfram er unnið að rannsókn málsins en frekari upplýsingar um það verða ekki gefnar að sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tré rifnaði upp í stormi og viku seinna kom óhugnaður í ljós

Tré rifnaði upp í stormi og viku seinna kom óhugnaður í ljós
Fréttir
Í gær

Fengu ekkert fyrir kröfur Omza gegn ÍAV – Sagt að hypja sig af verksvæðinu vegna tafa og galla á verkinu

Fengu ekkert fyrir kröfur Omza gegn ÍAV – Sagt að hypja sig af verksvæðinu vegna tafa og galla á verkinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Skora á KKÍ að neita að spila við Ísrael á Eurobasket

Skora á KKÍ að neita að spila við Ísrael á Eurobasket
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta er samfélag sem byggir mann upp“

„Þetta er samfélag sem byggir mann upp“