fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Fréttir

Tvö börn struku af leikskóla á Akureyri

Auður Ösp
Föstudaginn 2. nóvember 2018 13:53

Mynd: Auðunn Níelsson. akureyri.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvö fjögurra ára börn náðu að strjúka frá leikskólanum Naustatjörn á Akureyri og voru týnd í rúmlega hálfa klukkustund. Atvikið átti sér stað síðastliðin mánudag.

Fram kemur á vef RÚV að sendur hafi verið tölvupóstur á foreldra barna í tveimur af sex deildum leikskólans og þeim gert viðvart um atvikið. Fram kemur að börnin hafi látið sig hverfa eftir að þau voru beðin um að ganga betur frá fötum sínum eftir útiveru.

Í samtali við RÚV segir Jónína Hauksdóttir skólastjóri Naustaskóla að leikskólinn Naustatjörn sé starfræktur í tveimur byggingum. Börnin tvö sem um ræðir eru á deild sem starfrækt er í húsnæði Naustaskóla en þar er aðgengi auðvelt og þarf einungis að ýta á einn takka til að komast út.

Fram kemur að strax hafi hafist mikil leit og haft samband við lögreglu. Börnin fundust síðan á heimili annars þeirra eftir að hafa verið týnd í hálfa klukkustund. Þá segir Jónína að atvikið sé litið alvarlegum augum og hafi verklagsreglum verið breytt þannig að börn séu ávallt í fylgd kennara þegar þau fara fram í forstofu.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem barn nær að strjúka frá Naustatjörn en í ágúst síðastliðnum greindi Fréttablaðið frá því að  tæplega þriggja ára drengur hefði sloppið út um opið hlið á leikskólanum. Var drengurinn kominn langleiðina að heimili sínu þegar vegfarandi kom að honum grátandi og hræddum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu

RÚV mátti ekki auglýsa Rás 2 á undan Áramótaskaupinu
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“

Björn Ingi segir átök vera fram undan: „Tekist er á um þessi mál að tjaldabaki þessa dagana“
Fréttir
Í gær

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“

Andri Snær klórar sér í kollinum yfir nýju göngubrúnni: „Hún virðist líka eiga að vera svona“
Fréttir
Í gær

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu

Menn á sjötugsaldri ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnasmygl – Fluttu kókaín í pottum með Norrænu