„Ég vil ekkert annað en að geta átt nóg ofan í sjálfa mig, greitt niður allar þær skuldir sem hafa hrannast á mig og geta lagt til hliðar hver mánaðarmót. En umfram allt vil ég geta lifað góðu lífi, hamingjusöm og laus við óþarfa áhyggjur. Er það of mikið að biðja um?,“ spyr Karen Dögg Gunnarsdóttir en hún er 26 ára og öryrki vegna þunglyndis, kvíða og áfallastreituröskunar. Karen hefur glímt við andleg veikindi frá unga aldri en segist enga aðstoð fá á Íslandi. Hún fluttist því til Svíþjóðar ásamt kærasta sínum og segist hafa upplifað allt annað viðmót og gífurlegan mun á lífsgæðum.
Í einlægum pistli sem birtist á vef Jack Daniels segir Karen að rödd ungra öryrkja heyrist lítið sem ekkert í opinberri umræðu. Veitti hún DV góðfúslegt leyfi til að birta vangaveltur sínar.
„Ég er fædd og uppalin hér en eftir miklar og erfiðar vangaveltur flutti ég ásamt kærastanum mínum, Jack Hrafnkeli Daníelssyni, til Svíþjóðar í pínuponsu sveitaþorp og líkaði mjög vel. Það var ekki auðvelt og að sjálfsögðu eltu skuldir og skemmtilegheit okkur út til Svíaríkis.“
Karen þurfti að skilja hestana sína eftir á Íslandi og það reyndist henni á endanum of þungbært, enda eru hestarnir að hennar sögn það sem heldur henni gangandi frá degi til dags. Samneytið við dýrin jafnist á við marga sálfræðitíma.
„Ég ákvað því að flytja aftur til Íslands til að vera nær þeim og reyna að klóra mig áfram í skóla, en ég komst að því fyrir stuttu að það er bara ekki að virka fyrir mig. Ekki vegna þess að ég vilji það ekki eða geti það ekki, heldur vegna þess að Ísland hefur ekki góð áhrif á mig,“
segir Karen en geðheilbrigðiskerfið á Íslandi er að hennar mati í molum.
„Fólk þarf að vinna eins og skepnur til að ná endum saman í tveimru til þremur störfum og ekkert er gert í þessum málum.
Það er gríðarlegt álag á ungu fólki í dag til að ná sömu markmiðum og fólk var að ná fyrir 40 árum síðan, til dæmismeð húsnæðiskaupum. Húsnæðiskaup á Íslandi er ekkert annað en gildra. Fólk eignast aldrei þá eign sem það kaupir.
Ungt fólk sem er að glíma við andleg veikindi eins og þunglyndi og kvíða fær hvergi aðhald, það er hvergi gripið þegar það fellur og mín reynsla er sú að læknar eru allt of duglegir að skrifa upp á lyf í stað þess að reyna að finna rót vandans með talmeðferð.“
Hún tekur fram að réttilega sé ekki hægt að kenna læknum um vandann en spyr hvað annað sé hægt að gera „þegar venjulegt fólk hefur ekki efni á tíma hjá sálfræðingi sem kostar orðið 15.000kr. fyrir hvern 45 mínútna tíma.“
Seinasta sumar, á meðan Karen var í Svíþjóð komst hún hjá sálfræðingi á heilsugæslunni. Þá fékk hún að kynnast því hversu gífurlega jákvæð áhrif samtalsmeðferð getur haft á andlega líðan.
„Ég komst þó ekki í nema sjö tíma hjá þessum yndislega sálfræðingi, en eftir þessa sjö tíma, 45 mínútur í senn, var ég gjörbreytt manneskja. Það gerði gríðarlega mikið fyrir mig eftir að hafa upplifað vonleysi og vanlíðan frá því ég man eftir mér.
Ég var allt önnur manneskja í sumar, full af gleði og björtum vonum. Svo ákvað ég að koma aftur til Íslands. Það voru mistök. Það að greiðsluþátttökukerfið skuli ekki niðurgreiða sálfræðiaðstoð er út í hött og ofar mínum skilningi. Hvernig er hægt að ætlast til þess að manneskja geti fúnkerað ef andlega hliðin er ekki í góðu standi?“
Karen spyr hvers vegna að það þyki ekki eins sjálfsagt að fólk geti fengið að hlúa að andlegu hliðinni án þess að þurfa að vinna frá sér alla heilsu, líkamlega og andlega.
„Fátækt og vanlíðan haldast í hendur. Og ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir þessu kombói.“
Karen endar pistilinn á að „þakka“ núverandi ríkisstjórn fyrir að hafa neytt hana til að flýja land.
Ef það hefði ekki verið fyrir þessar aðgerðir ríkisstjórnar Íslands þá hefði ég aldrei fengið að upplifa góða heilbrigðisþjónustu sem greip mig þegar ég nauðsynlega þurfti á því að halda. Ég hefði ekki heldur fengið að sjá það að matvörur og nauðsynjavörur þurfa ekki að vera á himinháu verði til að vera góð gæði og að ég á raunverulegan möguleika á því að eignast hús í framtíðinni þar sem húsnæðismarkaðurinn í Svíþjóð er raunhæfur.
Í fyrsta skipti sé ég loksins fyrir mér bjarta og góða framtíð þar sem ég get komist yfir mín veikindi í kerfi sem vill vinna með mér og sér mig sem hluta af lausninni en ekki sem blóðsugu á kerfinu sem á ekkert gott skilið.
Takk Kata Jakobs, Bjarni Ben og allir hinir sem eigið hlut að máli, ef þið, og hinir sem á undan ykkur réðuð ríkjum á Íslandi, hefðuð ekki haldið Íslandi í þessari fátækt þá hefði ég aldrei tekið þetta skref að flytja til Svíþjóðar og kynnast raunverulegum mannréttindum og manngæsku sem þar er.Að sjálfsögðu er Svíþjóð ekki fullkomið, langt því frá, en þar á ég heima og þangað mun ég flytja aftur áður en langt um líður.“