fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Fréttir

Farþegi með sex mánaða barn í fanginu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. október 2018 10:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af bifreið á dögunum þar sem farþegi hélt á sex mánaða barni í fanginu. Barnið var þar af leiðandi ekki í tilskyldum öryggisbúnaði eins og lög gera ráð fyrir. Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglu.

Þar segir einnig að átján ökumenn hafi verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók mældist á 153 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Næstmesti hraði sem mældur var reyndist vera 147 kílómetrar þar sem hámarkshraði er einnig 90 kílómetrar. Í báðum tilvikum var um að ræða erlenda ferðamenn.

Fáeinir ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur og skráningarnúmer voru fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli

Íslensk kona kynntist draumaprinsinum á stefnumótaforriti – ChatGPT staðfesti að svik voru í tafli
Fréttir
Í gær

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn

Meintur níðingur á Múlaborg vel liðinn og sagður blíður við börn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun

Starfsmaður fiskvinnslufyrirtækis lagði fram kæru eftir að hafa verið sagt að mæta í vinnuna í vinnslustöðvun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“

Stefán segir skemmdarfýsn hafa ráðið för í Tjarnargarðinum – „Það hefur þurft að hafa ansi mikið fyrir þessu“