Kona sem flutt var slösuð á sjúkrahús í Reykjavík í gær vegna höfuðáverka sem hún hlaut eftir að hún féll á göngustíg sem liggur frá bílastæðinu við Reynisfjöru niður í fjöruna er látin.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að konan hafi verið erlendur ferðamaður, fædd 1938, á ferð um Ísland með fjölskyldu sinni.
Tilkynning barst neyðarlínu um klukkan 14:30 í gær og voru viðbragðsaðilar á Suðurlandi þegar kallaðir til. Konan var flutt til móts við þyrlu LHG með sjúkrabifreið og svo áfram með þyrlunni til Reykjavíkur.