fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
Fréttir

Hildur er einstæð móðir með 210 þúsund á mánuði: „Þegar ég skrifa þetta fæ ég hreinlega tár í augun“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 2. maí 2018 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var eins og ég væri með þung lóð bundin um ökkla mér. En í dag man ég eftir þessari tilfinningu, hún var svo sterk að hún mun aldrei gleymast.“ Þannig lýsir Hildur Oddsdóttir líðan sinni þegar hún þurfti í fyrsta skipti að kyngja stoltinu og þiggja mataraðstoð frá hjálparsamtökum, þar sem það reyndist henni ómögulegt að draga fram lífið á strípuðum örorkubótum. Saga Hildar er aðeins ein af mörgum en hún segir íslenskt samfélag geta gert mun betur við þá sem eru í sárri neyð.

Svelti sig til að eiga fyrir rafmagnsreikning

Í grein DV í apríl á seinasta ári lýsti Hildur reynslu sinni af fátækt sem „ljótri og leiðinlegri.“ Meðal annars kom fram að hún hefur áður þurft að grípa til þess ráðs að svelta sig til að geta séð börnum sínum fyrir mat.

„Það gerðist bara núna fyrir nokkrum dögum að ég fékk óvæntan rafmagsnreikning, gamlan sem ég hélt að ég væri búin að borga. Ég fékk ekki neinn frest á þetta, það var bara annað hvort að borga eða að loka rafmagninu,“ sagði Hildur sem sá sig að lokum knúna til að láta síðustu aurana renna í að borga reikninginn.

„Þetta var síðasti peningurinn sem átti að vera fyrir mat. Þetta voru síðustu dagarinar fyrir mánaðamót. En ég átti pínu til í ískápnum sem að dugði þessa fjóra daga fyrir börnin. Ég borðaði ekki neitt.“

Fékk taugaáfall

Hildur er 39 ára gömul og 75 prósent öryrki vegna andlegra veikinda. Hún er jafnframt einstæð móðir tveggja drengja. Hún er í framboði fyrir Sósíalistaflokk Íslands í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík en í kynningartexta fyrir flokkinn segir hún frá reynslu sinni af því að detta út af vinnumarkaðnum og þurfa að reiða sig á aðra til að láta enda ná saman.

„Frá því að ég var 13 ára gömul byrjaði ég að vinna og bera ábyrgð á sjálfri mér, ég hef alltaf verið mjög sjálfstæð og mjög virk í mínu daglega lífi. Ég átti aldrei í neinum erfiðleikum að leita mér að vinnu og var oftast ráðin á staðnum. Því að í mínum meðmælum stóð að ég væri dugleg, fljót að læra og væri mjög jákvæð persóna.

Ég kem af yndislegri fjölskyldu. Ég á þrjár systur og frábæra foreldra. Við vorum sex á heimilinu. Ég ólst upp við þær aðstæður að maður þurfti að hafa fyrir lífinu. Við systurnar fengum ekki hlutina beint í hendurnar. Móðir okkar var mikill saumakona og saumaði mikið á okkur systurnar. Faðir minn vann við fiskiðnað og kom með fisk heim. Fengum kjöt úr sveitinni og þau tóku slátur á hverju hausti til að eiga nóg af mat í kistu. Þannig ég ólst við gott uppeldi.

Árið 1996 fór Hildur fyrst að finna fyrir þunglyndiseinkennum en hún lét þó á engu bera og var að eigin sögn í afneitun. Þannig liðu árin en árið 2004 var Hildur komin í andlegt þrot.

„Árið 2002 átti ég mitt fyrsta barn sem átti að vera minn hamingju tími en fann lítið fyrir því. Málið er ég þurfti að standa í mjög erfiðu faðernismáli sem tók mikinn toll að mínu daglega lífi og minni líðan. Árið 2004 lauk loks málinu og þá gerðist það að heimurinn hrundi hjá mér það var hreinlega ekkert eftir sem kallast orka, jákvæði né gleði. Ég fékk taugaáfall. Ég var greind með þunglyndi, þráhyggju röskun og félagsfælni.

Þarna þetta ár 2004 breytist allt hjá mér. Fór úr þessari glaðlegri persónu yfir í allt annan heim og varð að viðurkenna að mín andlega hlið væri eitthvað biluð. Mér var einfaldlega bannað að vinna. Læknar og sálfræðingur sögðu mér að frekar vinna í sjálfri mér og byggja mig upp. Þetta var gríðarleg breyting fyrir mig þar sem ég hef alltaf unnið.“

Þung skref

Hildur var í kjölfarið sett á bætur frá TR. Hún gerði sér hins vegar fljótt grein fyrir því að það myndi reynast henni ómögulegt að draga fram lífið á þeirri upphæð sem henni var skammtað um hver mánaðamót. Hún þurfti að greiða reikninga og eiga fyrir mat og lyfjum fyrir sig og son sinn.  Í viðtali við Stundina í desember síðastliðnum kvaðst mánaðarlega útborgað um 210.000 krónur. Þá fær hún mánaðarlega um 120.000 krónur í barnameðlag og barnalífeyri. Hún býr í fjögurra herbergja, félagslegri íbúð ásamt sonum sínum.

„Ég þurfti að leita eftir frekari hjálp. Mér var bent að á fara til Hjálparstarfs kirkjunnar og mæðrastyrksnefndar til að fá hjálp með mat. Á þessum tímapunkti þurfti ég að lækka mitt eigið sjálfsmat og stappa í mig stálinu og taka þau erfiðu skref að sækja um aðstoð fyrir mat. Sú tilfinning varð mér erfið og skrefin voru mjög þung,“

segir Hildur en hún hefur þurft að sækja þessa aðstoð í 14 ár.

„Ég hef ekki bara fengið mataraðstoð, heldur einnig fyrir fatnaði, æfingargjöldum og sumarfrístund fyrir eldri strákinn minn. Og fékk einnig aðstoð til að ferma strákinn minn. Ég hef ekki setið auðum höndum öll þessi ár, ég farið á námskeið og lét ein af mínum draumum rætast þegar ég fór í skóla sem þau hjá Hjálparstarfi kirkjunnar styrktu mig með.

Þegar ég skrifa þetta fæ ég hreinlega tár í augun því að þetta var ekki inn á mínu framtíðarplani. Ég er manneskja eins og hver annar. Ég var að ræða við vinkonu mína og samstarfskonu, sem ég vinn með í Pepp (samtök fátækra á Íslandi), hvað mig langar að losna við þessa tilfinningu og að þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur. Losna við þessa hugsun um hvernig hver mánuður og hver vika verður hjá mér. Á þessum stað sem ég og fleiri erum á, þarf maður að spá í allt, það má ekkert klikka.

Þetta er brot af minni sögu. Og svona eru sögurnar hjá fleira fólki sem hefur verið í sömu stöðu og ég.“

Þörf á kraftaverki í húsnæðismálum

„Í tvö ár hef ég verið að vinna með samtökum sem kalla sig Pepp á Íslandi. Þar kemur saman fólk sem býr við fátækt eða hefur lifa við hana og vill berjast gegn henni. Líka fólk sem hefur upplifað hvorugt en vill samt berjast gegn fátækt. Þetta er rosalega flottur og jákvæður hópur sem vill finna góðar lausnir til að útrýma fátækt. Við erum alltaf á vakt.

Í heilt ár hef ég unnið í verkefni sem heitir Breiðholtsbrúin og fer fram í Breiðholtskirkju. Þar er boðið upp á mat alla mánudaga. Tilgangur með þessu verkefni er að hjálpa fólki að komast út úr einangrun. Breiðholtsbrúin er samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar, Breiðholtskirkju og Pepp Ísland.

Hvað finnst mér hvað mætti betur gera og þarf að breyta? Það þarf stórt kraftaverk í húsnæðismálum og góðar lausnir til að breyta húsnæðismarkaðinum. Það þarf að grípa til aðgerða til að vinna gegn þeirri stöð sem sást í þeim skýrslum sem hafa verið unnar um fátækt á Íslandi. Það kom meðal annars fram að sex þúsund börn búa við fátækt. En það þarf að vinna með öðrum hópum líka, öryrkjum, ellilífeyrisþegum, þeim sem eru á skrá hjá félagsþjónustunni og svo er stór hópur láglaunafólks í fullri vinnu sem lifir við fátækt, stritandi fátækt. Það má svo ekki gleyma hópnum sem lifir við sára fátækt. Sá hópur var til fyrir Hrun og býr við enn verri stöðu í dag. Mér finnst þessi hópur hafa gleymst. Það talar enginn um hann.

Við erum fámenn þjóð sem býr í stóru landi. Við erum rík. Við getum haft samfélagið okkar miklu betra og gert betur við þá sem eru í mestri neyð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir að Ísraelsmenn tilkynntu að þeir ætli að taka yfir Gaza

Allt á suðupunkti eftir að Ísraelsmenn tilkynntu að þeir ætli að taka yfir Gaza
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segir samráðsleysi við íbúa Ölfuss algjört – „Þögn er sama og samþykki“

Segir samráðsleysi við íbúa Ölfuss algjört – „Þögn er sama og samþykki“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“