Freistar þess að stilla til friðar innan Pírata með færslu á Pírataspjallinu – Innanflokksátök hafa sett svip sinn á flokkinn undanfarin misseri – Lítið talsamband milli þingmanna
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata stígur fram á Pírataspjallinu og áréttar fyrir stuðningsmönnum flokksins „að í hvert sikipti sem við beinum gremju eða andúð gagnvart hvert öðru þá erum við að skemmta skrattanum.“ Hefur Birgitta áhyggjur af því að sá stuðningur sem Píratar hafa notið í skoðanakönnunum muni hverfa eins og dögg fyrir sólu ef fram heldur sem horfir.
„Samfélagið okkar er í molum, verjum frekar tíma okkar í að leita raunverulegra lausna fyrir samfélagið í heild. Þjóðin okkar er orðin örmagna vegna þeirra sundrungar sem hér er alltaf alið á og er þekkt leið til að klekkja á samtakamætti þjóðar,“ segir Birgitta.
Þá boðar þingmaðurinn jákvæð tíðindi fyrir Pírata í dag: „Það mun mjög margt gott og jákvætt gerast í dag. Margir jákvæðir og mikilvægir ferlar að gerjun,“ segir hún í athugasemd við færsluna.
Innanhúsátök hafa sett svip sinn á Pírata undanfarin misseri og virðast aðallega fara fram í gegnum fjölmiðla og samfélagsmiðla. Í frétt Eyjunnar fyrir helgi var því haldið fram að lítið talsamband væri milli þingmanna flokksins og að deilurnar væru farnar að rista dýpra en almenningur áttaði sig á.
Birgitta og Helgi Hrafn tókust til að mynda á í fjölmiðlum um hvort að Píratar almennt vildu styttra þing á næsta kjörtímabili og kjósa um stjórnarskrá og ESB. Þau eru algjörlega á öndverðum meiði í því máli og sakaði Birgitta meðal annars Helga Hrafn um „stórkostlegar rangfærslur“ varðandi málið á Facebook-síðu sinni. Útspil hennar á Pírataspjallinu í dag er hinsvegar greinilega gert til þess að lægja öldurnar.