fbpx
Miðvikudagur 23.júlí 2025
433Sport

Þetta hefði Aron Jó gert árið 2013 hefði hann vitað að Ísland kæmist á HM

Victor Pálsson
Laugardaginn 23. júní 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Aron Jóhannsson var mikið í umræðunni árið 2013 er hann ákvað að leika fyrir bandaríska landsliðið.

Aron gat valið á milli bandaríska eða íslenska landsliðsins en Jurgen Klinsmann vildi ólmur fá framherjann til að leika fyrir Bandaríkin.

Aron tók því boði og fékk í kjölfarið að fara á HM 2014 og varð fyrsti Íslendingurinn til að spila á mótinu.

Það bjuggust fáir við því að Ísland myndi svo tryggja sér þátttöku á HM fimm árum síðar en við lékum einnig á EM fyrir tveimur árum.

Aron ræddi við Yahoo Sport í dag og var á meðal annar spurður hvort hann hefði tekið sömu ákvörðun hefði hann vitað að Ísland kæmist á HM.

,,Það eru allir að segja við mig að ég hefði tekið aðra ákvörðun hefði ég vitað að Ísland væri að fara á HM, bla, bla bla,“ sagði Aron.

,,Hefði ég tekið sömu ákvörðun hefði ég vitað það sem ég veit í dag? Já, ég myndi taka sömu ákvörðun.“

,,Ég myndi segja það sama við fjölskyldu og vini. Að spila fyrir Bandaríkin hefur verið ótrúleg reynsla. Ég hef upplifað frábæra tíma og vonandi verða þeir fleiri.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum
Birnir Breki til ÍA
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Mourinho sagður vera að fá nóg í starfinu – Fær ekkert sem hann vill

Mourinho sagður vera að fá nóg í starfinu – Fær ekkert sem hann vill
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Mikið fjallað um kærasta Sveindísar í fjölmiðlum

Mikið fjallað um kærasta Sveindísar í fjölmiðlum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Brighton að missa lykilmann fyrir 19 milljónir

Brighton að missa lykilmann fyrir 19 milljónir
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Mahrez ósammála Ronaldo sem vill meina að hann sé í einni bestu deild heims

Mahrez ósammála Ronaldo sem vill meina að hann sé í einni bestu deild heims
433Sport
Í gær

Segir að allir viti að hann fari sumarið 2026

Segir að allir viti að hann fari sumarið 2026
433Sport
Í gær

Hafnaði 6-7 stærri liðum fyrir utandeildina

Hafnaði 6-7 stærri liðum fyrir utandeildina
433Sport
Í gær

Ekki valinn í 29 manna hóp Liverpool og framhaldið nokkuð skýrt

Ekki valinn í 29 manna hóp Liverpool og framhaldið nokkuð skýrt
433Sport
Í gær

Segir það erfitt að mæta Gyokores – Gætu spilað saman í vetur

Segir það erfitt að mæta Gyokores – Gætu spilað saman í vetur