Annasöm helgi
EyjanÞað er annasöm helgi framundan. Kosningasjónvarp á RÚV annað kvöld. Ég verð þar í einu horninu með gesti sem rýna í tölurnar. Í hádeginu á sunnudag er fæ ég svo til mín í sjónvarpssal formenn stjórnmálaflokkanna – þeirra sem ná mönnum inn á þing. Þá er þess að vænta að þreifingar um myndun ríkisstjórnar verði Lesa meira
Framsókn getur fengið fleiri þingmenn með færri atkvæði
EyjanÍ viðbrögðum við skoðanakönnun frá Félagsvísindastofnun sem Morgunblaðið birti í gær dregur Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, upp athyglisverða mynd. Að Sjálfstæðisflokkurinn geti fengið ívið meira fylgi en Framsókn en samt færri þingmenn. Í skoðanakönnuninni er Sjálfstæðisflokkurinn með 24,8 prósent en Framsóknarflokkurinn með 24,4. Þetta er ekki tölfræðilega marktækur munur, en ef þetta er Lesa meira
Að einfalda málin
EyjanÉg lendi mikið í því að þurfa að útskýra íslenska pólitík fyrir útlendingum. Það er ekki alltaf auðvelt. Maður vill segja satt og rétt frá – og ekki einfalda málin um of. Ég er ekki sammála Stefaníu Óskarsdóttur sem segir að skýringin á fylgistapi Samfylkingarinnar sé sú að flokkurinn hafi færst meira til vinstri. Í Lesa meira
Óréttlæti í kosningakerfinu
EyjanÞað er ljóst að ef ekki væri svonefnd 5 prósenta regla myndu fleiri framboð ná mönnum inn á þing. Ábygglega Dögun og Lýðræðisvaktin, líklega fleiri. Tilgangurinn með reglunni er væntanlega að koma í veg fyrir komi fram mikill fjöldi smáflokka og að auðveldara verði að mynda ríkisstjórnir. Í jafn litlu landi og okkar er vandséð Lesa meira
Formannaþáttur RÚV – og Stöðvar 2
EyjanÉg held að ekki sé hægt að neita því að kosningaumfjöllun Ríkisútvarpsins hefur verið til mikils sóma. Þess hefur verið gætt að öll framboð komist að – og njóti jafnræðis. Það er hin lýðræðislega aðferð. Umfjölluninni fyrir kosningar lýkur á RÚV annað kvöld. Þá verður þáttur með formönnum flokkanna sem bjóða fram á landsvísu. Í Lesa meira
Atkvæðin dreifast víða
EyjanStóru tíðindin í könnun Félagsvísindastofnunar sem birtist í Morgunblaðinu í morgun eru að fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er samanlagt komið niður fyrir fimmtíu prósent. Þetta gerist reyndar án þess að stjórnarflokkarnir séu að bæta sérlega miklu við sig. En vegna þess að fylgið er að dreifast mikið á framboð sem ná ekki manni inn – Lesa meira
Samfylkingin, VG – og klofningsframboðin
EyjanSamfylkingin var stofnuð til að vera stóri flokkurinn á vinstri vængnum. Það tókst ekki að sameina allt vinstrið, hluti af Alþýðubandalaginu tók sig til, fann nýjan málstað sem var kominn í tísku – blandaði saman umhverfisvernd og sósíalisma. En Samfylkingunni tókst að verða stór. Með tilkomu hennar varð krataflokkurinn miklu stærri en sósíalistaflokkurinn – á Lesa meira
Formaður Samfylkingarinnar gegn Stefáni Ólafssyni
EyjanMerkileg rimma er komin upp milli Stefáns Ólafssonar prófessors og Árna Páls Árnasonar formanns Samfylkingarinnar. Stefán hefur öðrum fremur mælt ríkisstjórninni bót hvað varðar árangur hennar. En í greinum nýskeð hefur hann ljáð máls á því að hugmyndir Framsóknarflokksins um að laga stöðu skuldara séu ekki alveg ómögulegar. Hann hefur meira að segja skrifað að Lesa meira
Lítil saga úr Melabúðinni
EyjanMér heyrist að mörgum Sjálfstæðismönnum sé brugðið vegna könnunarinnar sem birtist í Fréttablaðinu í morgun. Þar er flokkurinn ekki með nema 23,8 prósenta fylgi, semsagt það sama og í síðustu kosningum. Þeir bjuggust við meiru eftir atburðarásina sem fór af stað þegar Bjarni Benediktsson kom í frægt viðtal í sjónvarpið. En kannski var Sjálfstæðisflokkurinn bara Lesa meira
Rányrkja bankanna
EyjanMaður trúir varla fréttum eins og þessari – um þjónustugjöld bankanna. Hér segir að tekjur af þeim hafi verið 24,6 milljarðar króna á síðasta ári. Það er ótrúleg fjárhæð sem er plokkuð af notendum bankaþjónustu með þessari gjaldheimtu. Mætti jafnvel tala um rányrkju í þessu sambandi. Það er heldur ekki eins og fólk eigi val. Lesa meira