fbpx
Föstudagur 06.júní 2025

Silfuregils

Nýr ráðherra Framsóknar?

Nýr ráðherra Framsóknar?

Eyjan
01.09.2013

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði á Sprengisandi í morgun að nýr ráðherra Framsóknar í ríkisstjórninni yrði kynntur fljótlega og að til yrði „sterkt ráðuneyti“ sem færi með umhverfismál. Nú er dálítið úr vöndu að ráða fyrir formanninn. Hann lagði mikið á sig til að halda Vigdísi Hauksdóttur utan ríkisstjórnar í vor og það er ekki líklegt Lesa meira

Moska í Reykjavík

Moska í Reykjavík

Eyjan
31.08.2013

Þetta er eiginlega alveg rakið, vantar bara turnana (mínaretturnar). Eða er það kannski svona sem sumir halda að þetta verði þegar verður komin moska (þeir segja reyndar margir moskva) í Reykjavík.

Flokkur fyrir bullur?

Flokkur fyrir bullur?

Eyjan
31.08.2013

Marta Andreasen, Evrópuþingmaðurinn sem hélt fyrirlestur hjá Heimssýn í gær, er skrautleg kona. Andreasen var í Ukip, breska sjálfstæðisflokknum, en er nú komin í raðir Íhaldsmanna. Viðskilnaður hennar við Nigel Farage, leiðtoga Ukip, var mjög harður. Hún sagði að Farage væri „stalínískur harðstjóri sem hefði andúð á konum“. Skoðun hans væri sú að konur ættu Lesa meira

Cohn-Bendit vill hernaðaríhlutun í Sýrlandi

Cohn-Bendit vill hernaðaríhlutun í Sýrlandi

Eyjan
31.08.2013

Daniel Cohn-Bendit, helsti leiðtogi stúdentauppreisnarinnar í Frakklandi 1968 er líka forystumaður Græningja bæði í Frakklandi og Þýskalandi. Cohn-Bendit er í viðtali við Der Spiegel þar sem hann segist vera fylgjandi hernaðaríhlutun í Sýrlandi. Hann varar vinstri hreyfinguna við því að láta ódýrt Bandaríkjahatur stjórna gerðum sínum í kosningabaráttunni í Þýskalandi. Það þýði ekki að elta Lesa meira

Heiftin á netinu

Heiftin á netinu

Eyjan
30.08.2013

Ég er þeirrar skoðunar að fólk sem vill fara að hlusta á Franklin Graham eigi að fá að gera það í friði. Það kann að vera að skoðanir mannsins séu ógeðfelldar, en það er ekki aðferðin til að mæta þeim að beita lúabröðum til að koma í veg fyrir að fólk komist til að hlusta Lesa meira

Íhaldssöm þjóð – eða hrædd?

Íhaldssöm þjóð – eða hrædd?

Eyjan
30.08.2013

Eru Íslendingar kannski mjög íhaldssöm þjóð – eða bara hrædd? Það má ekki nefna það að gera breytingar á heilbrigðiskerfinu eða menntakerfinu? Og landbúnaðarkerfinu – það er varla neinn pólitíkus sem leggur í að boða breytingar á því? Hér hrundi bankakerfi, en nei, það var endurreist í nær sömu mynd. Eins og það hefði virkað Lesa meira

Seamus Heaney látinn

Seamus Heaney látinn

Eyjan
30.08.2013

Írska nóbelsskáldið Seamus Heaney er látinn. Heaney var fæddur 1939. Hann var vinsælt skáld, sem hlaut marþættar viðurkenningar. Það er sagt að sala ljóðabóka hans nemi tveimur þriðjuhlutum af allri sölu á ljóðabókum á Bretlandseyjum. Á tíma þegar ljóðmál átti erfitt updráttar fór Heany að leggja áherslu á strangleika formsins. Hann orti oft um hversdagslega Lesa meira

Allt í senn

Allt í senn

Eyjan
29.08.2013

„Umræðan um Reykjavíkurflugvöll sameinar allt það fegursta við íslenska pólitík: jafnvægi, gegnsæi, rökhyggju, skynsemi og lausnaviðmið…!“ – Færsla á Facebook, 29. 8. 2013.

Staðurinn sem gerir okkur ríkari, klárari, hraustari og hamingjusamari

Staðurinn sem gerir okkur ríkari, klárari, hraustari og hamingjusamari

Eyjan
29.08.2013

Triumph of the City er stórmerkileg bók eftir bandarískan hagfræðing sem nefnist Edward Glaeser og er prófessor við Harvardháskóla. Höfundurinn er mikill aðdáandi borga – hann segir að borgir séu staðirnir þar sem eigi sér stað hugmyndaleg gerjun, þar sem skapandi og drífandi fólk er að verki, þar sem kostir nábýlis njóti sín, þar sem Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af