fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025

Silfuregils

Kominn tími til að hugsa í lausnum, ekki eilífum ágreiningi

Kominn tími til að hugsa í lausnum, ekki eilífum ágreiningi

Eyjan
10.09.2013

Það er látið eins og ekki séu til neinir valkostir við að hafa flugvöll í Vatnsmýri, eins og engar málamiðlanir komi til greina. Málið er orðið eilíf uppspretta kergju og vanlíðunar – það er alltaf hægt að nota það til að búa til leiðindi milli landsbyggðar og höfuðborgar. Einhvern tíma verður þetta að hætta. Það Lesa meira

Berskjölduð gagnvart bönkum

Berskjölduð gagnvart bönkum

Eyjan
09.09.2013

Í grein um eftirlitsiðnað fyrr í dag skrifaði ég að almenningur – og reyndar samfélagið allt – stæði höllum fæti gagnvart bankavaldinu. Það getur ákveðið ýmislegt að geðþótta, fólk möglar af veikum mætti, en það hefur lítil áhrif. Þróunin hefur reyndar verið merkileg. Nú eru í raun allir neyddir til að eiga viðskipti við banka. Laun Lesa meira

Hvernig á að taka á móti 2 milljónum ferðamanna?

Hvernig á að taka á móti 2 milljónum ferðamanna?

Eyjan
09.09.2013

Það má oft hafa mjög gaman að greiningardeildum bankanna – þær voru náttúrlega skemmtilegastar fyrir hrun. Og þá var eftirlitsiðnaðurinn heldur ekkert að þvælast fyrir þeim. Í Morgunblaðinu í dag er rætt við greiningardeildarmann sem hefur lengi verið framarlega í flokki. Fyrirsögn greinarinnar er „Stórtíðindi fyrir íslenskt efnahagslíf“. Og jú, vissulega eru þarna boðuð stór Lesa meira

Smávegis um „eftirlitsiðnað“

Smávegis um „eftirlitsiðnað“

Eyjan
09.09.2013

Það er sjálfsagt að fylgjast með því að stofnanir bólgni ekki út. Vissulega er hætta á sjálfvirkri útþenslu. Nú er sjónum beint að svonefndum „eftirlitsiðnaði“. Orðið hefur mjög neikvæðan undirtón. En það ber að líta til þess að við vildum ekki vera án margs konar eftirlits. Það getur sparað fé, aukið heilbrigði og jafnvel bjargað Lesa meira

Étum makríl!

Étum makríl!

Eyjan
08.09.2013

Makríll er ekki góður matfiskur. Nei, hann er eiginlega frekar vondur. En nú má enginn liggja á liði sínu. Við verðum öll að éta makríl og sýna ESB tvo í heimana. Og ef við verðum nógu dugleg gæti makríllinn innan tíðar orðið þjóðarréttur okkar, matur sem minnir á sjálfstæði þjóðarinnar.

Sjúkrahús og heilnæmt umhverfi

Sjúkrahús og heilnæmt umhverfi

Eyjan
08.09.2013

Maður áttar sig ekki alveg á því hver er staðan varðandi hátæknisjúkrahúsið svokallaða. Framsóknarmenn voru komnir í nokkuð harða andstöðu gegn því fyrir kosningar, þótt reyndar hafi verkefnið fyrst og fremst verið keyrt áfram af framsóknarmönnum hingað til. Er ennþá ætlunin að byggja þennan risastóra spítala á þessum stað? Í deilunum um flugvöllinn virðast menn Lesa meira

Ofvöxtur höfuðborgarsvæðisins

Ofvöxtur höfuðborgarsvæðisins

Eyjan
08.09.2013

Ég hef ferðast mikið um landið í sumar – eins og reyndar mörg sumur. Nú er ég staddur á Vestfjörðum, sat hér skemmtilega ráðstefnu um helgina undir yfirskriftinni Í byrjun tveggja alda. Það voru ýmsar hugleiðingar sem vöknuðu á þessari ráðstefnu. Eitt varðar til dæmis hinn ótrúlega flótta í borgirnar. Sex stærstu bæir landsins liggja Lesa meira

Gölluð undirskriftasöfnun

Gölluð undirskriftasöfnun

Eyjan
07.09.2013

Vandinn við undirskriftasöfnun með flugvelli í Vatnsmýri er að hún byggir á áróðri og mjög lélegum upplýsingum. Ekkert er leitast við að útskýra hvaða kostir kunni að vera í boði. Það er mikið látið með sjúkraflugsrökin – eins og ástand sjúkraflugs í landinu sé frábært. Sem er alls ekki. Sjúkraflugið hlýtur líka að þurfa að Lesa meira

Hjarta landsins? – en Þjórsárverum er ekki ógnað

Hjarta landsins? – en Þjórsárverum er ekki ógnað

Eyjan
06.09.2013

Umhverfisverndarsinnar gerðu sér ferð í Þjórsárver í gær og boðuðu baráttu gegn Norðlingaölduveitu. Yfirskriftin er að á hálendinu slái hjarta landsins. Maður hélt reyndar miðað við síðustu atburði að það væri í Vatnsmýrinni. En baráttan á að snúast um að hálendinu verði hlíft, eins og segir. Það er samt staðreynd sem er ekki sérlega mikið Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af