fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025

Silfuregils

29. september – hvers er að minnast?

29. september – hvers er að minnast?

Eyjan
29.09.2013

Hvers er að minnast 29. september? Sigurður G. Guðjónsson lögmaður skýrir frá því í hvassyrtri bloggfærslu á Pressunni – fyrir fimm árum hófst einhver dramatískasta atburðarás Íslandssögunnar þegar skýrt var frá því á mánudagsmorgni að ríkið hefði tekið yfir 75 prósent af Íslandsbanka. Nokkrum dögum síðar var allt íslenska bankakerfið hrunið – við erum ennþá Lesa meira

Vesalings Ítalía

Vesalings Ítalía

Eyjan
29.09.2013

Ég hef oft velt því fyrir mér hvílík sturlun það er hjá hinni gömlu menningarþjóð Ítölum að velja Silvio Berlusconi til forystu. Það hafa fleiri gert, á því hefur verið hamrað í fjölmiðlum utan Ítalíu að maðurinn sé allsendis óhæfur sem þjóðarleiðtogi. En Berlusconi náði að leggja undir sig fjölmiðlana á Ítalíu og hefur í Lesa meira

Kveður við nýjan tón um erlenda fjárfestingu

Kveður við nýjan tón um erlenda fjárfestingu

Eyjan
29.09.2013

Erlend fjárfesting hefur löngum verið lítil á Íslandi – stærstu fjárfestingarnar eru þjú álver sem hafa verið byggð, tvö vestanlands, eitt fyrir austan. Íslendingar hafa sjálfir reist stórar virkjanir til að knýja þessar álbræðslur – sem hafa verið í meira lagi umdeildar. Það hefur komið fram, meðal annars í Kastljósi á síðasta vetri, að álfyrirtæki Lesa meira

Útrásarvíkingarnir höfðu rétt fyrir sér – að nokkru leyti

Útrásarvíkingarnir höfðu rétt fyrir sér – að nokkru leyti

Eyjan
26.09.2013

Umræða hefur spunnist um flutning fyrirtækja úr landi. Hjálmar Gíslason skrifar að það sé ekki flótti né föðurlandssvik að flytja fyrirtæki úr landinu. En auðvitað eru menn farnir að rífast um þetta eins og annað á Íslandi. Staðreyndin er sú að vaxtamöguleikar fyrirtækja eru mjög takmarkaðir á Íslandi. Aðalástæðurnar eru tvær, smæð þessa örmarkaðar og Lesa meira

Gísli Marteinn og hatursstjórnmálin

Gísli Marteinn og hatursstjórnmálin

Eyjan
26.09.2013

Það er merkilegt að Gísli Marteinn Baldursson skuli hverfa úr borgarpólitíkinni þar sem hann hefur verið af áhuga og ástríðu. Ef ekki er rúm fyrir menn eins og Gísla þar, ja, þá erum við í vondum málum. Ég þvertek svosem ekki fyrir það að það sé betra að vera í sjónvarpinu en í pólitíkinni – Lesa meira

Sérlega vondur fréttaflutningur

Sérlega vondur fréttaflutningur

Eyjan
26.09.2013

Ég verð að viðurkenna að ég hef horn í síðu ákveðinna tegunda af fjölmiðlun. Það eru til dæmis fríblöð. Mér hefur yfirleitt virst að þau séu einskis virði. Og svo eru það sjónvarpsstöðvar sem senda út fréttir allan sólarhringinn. Ég hef aldrei skilið þörfina á því – vitlausast var þó þegar reynt var að opna Lesa meira

Undrandi á landbúnaðarráðherra

Undrandi á landbúnaðarráðherra

Eyjan
26.09.2013

Oddný Anna Björnsdóttir er framkvæmdastjóri hjá Yggdrasil sem selur lífræna matvöru og í framkvæmdanefnd Samtaka lífrænna neytenda. Oddný birtir harða ádrepu á Sigurð Inga Jóhannsson landbúnaðarráðherra á Facebook síðu sinni – hún gagnrýnir framgöngu hans á fundi með stjórum frá Whole Foods verslanakeðjunni í Bandaríkjunum. Þetta er geysi stórt fyrirtæki með útibú um öll Bandaríkin. Lesa meira

Á að leyfa kannabis?

Á að leyfa kannabis?

Eyjan
25.09.2013

Það er hægt að færa rök bæði með og á móti því að leyfa kannabis. Rökin með hafa til dæmis verið þau að áfengi sé í raun skaðlegra en kannabis og að slæmt sé að vísa þeim sem vilja ná sér í þetta efni til fíkniefnasala sem geta verið býsna harðsvíraðir. Rökin móti eru einfaldlega Lesa meira

Myndir Sigfúsar, ljóð Tranströmers, uppáhaldsbækur Guðna

Myndir Sigfúsar, ljóð Tranströmers, uppáhaldsbækur Guðna

Eyjan
25.09.2013

Í Kiljunni í kvöld fjöllum við um glæsilega bók með ljósmyndum eftir Sigfús Eymundsson. Sigfús var að mörgu leyti ótrúlegur maður, hann er frumkvöðull í ljósmyndun á Íslandi, hann lét fjölfalda myndir og seldi um allt land, hann stofnaði bókaverslun og hann var umboðsmaður Ameríkuferða. Heillandi maður. Við segjum frá stórvirki sem er heildarútgáfa á Lesa meira

Kýr á fyrsta farrými

Kýr á fyrsta farrými

Eyjan
25.09.2013

Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær: “Að mati Heimsviðskiptastofnunarinnar kostar stuðningur við landbúnað neytendur og ríkissjóði í þróuðum ríkjum 350 milljarða dollara árlega. Þetta myndi nægja til að fljúga með allar mjólkurkýr landanna hringinni í kringum hnöttinn á fyrsta farrými.”

Mest lesið

Ekki missa af