Guð blessi Ísland–dagurinn
EyjanÞað er í raun dagurinn í dag 6. október sem er mesti tímamótadagurinn í sambandi við hrunið 2008. Það var þá að Geir H. Haarde forsætisráðherra kom í sjónvarpið og hélt ræðuna frægu sem endaði á orðunum Guð blessi Ísland. Þetta eru frægustu orð hrunsins, það er ekki oft á Íslandi að stjórnmálamenn kveða sér Lesa meira
Allt í blóma – og rugli
EyjanHugi Ólafsson skrifar á Facebook eftirfarandi athugasemd sem tengist bók Heiðars Más Guðjónssonar, en hún nefnist Norðurslóðasókn – Ísland og tækifærin. Hugi stillir veruleikanum á Íslandi upp á mjög athyglisverðan hátt: „Miðað við stóraukna auðlindanýtingu og verðmæti afurða hennar ættu lífskjör Íslendinga að hafa þrefaldast á síðustu 15 árum að mati Heiðars Más Guðjónssonar. Það Lesa meira
Giap – hershöfðinginn sem sigraði stórveldi
EyjanLíklega eru þeir ekki margir sem muna eftir Vo Nguyen Giap sem nú er látinn í hárri elli. En Giap var afar frægur á sínum tíma, mjög áhrifamikill – sumir myndu jafnvel telja að hann sé einn mesti hershöfðingi allra tíma. Giap stjórnaði her í tveimur styrjöldum sem voru mikið í heimsfréttunum – í frelsisstríði Lesa meira
Félag sannra Íslendinga
EyjanÞað er dálítið skrítið að heyra forsætisráðherra kvarta undan því að ekki megi tala vel um land og þjóð – ég held hann orði það þannig. Því það er eiginlega ekki það sem hann hefur verið að gera, nema á mjög takmörkuðum forsendum. Hann hefur hins vegar látið eins og fólk sem hefur ekki sömu Lesa meira
Ofan í holunni…
EyjanÞetta kvæði fer eins og eldur í sinu um Facebook. Það er ort af málfræðingnum Bjarka Karlssyni. Hann skýrir út tilurð þess neðanmáls, eins og menn sjá er það ort í tilefni af niðurskurði til byggingar Húss íslenskra fræða. — — — Ofan í holunni ætlað mér kannski var stæði arfinn að varðveita, rannsaka og Lesa meira
Gagnrýnin á fjárlögin
EyjanKári Stefánsson segir að nýtt fjárlagafrumvarp sé eins og verk stuttbuxnastráka í Matador. Það er ekki alveg nákvæmt. Frumvarpið er miklu líkara því að það hafi verið samið af embættismönnum og er í raun framhald af þeirri stefnu sem hér hefur verið fylgt síðan strax eftir hrun: Það er hægur og bítandi niðurskurður, lággengisstefna og láglaunastefna. Þetta Lesa meira
Haustdýrð í gamla kirkjugarðinum
EyjanEinn uppáhaldsstaðurinn minni í Reykjavík er gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu, stundum kallaður Hólavallagarður – þótt mér sé það ekki tamt. Ég er alinn upp í næsta nágrenni við kirkjugarðinn og fór að venja komur mínar þangað sem smástrákur. Stóð aldrei neinn stuggur af garðinum. Garðurinn er eitt skýrasta dæmið um það hvernig trjágróður hefur gjörbreytt Lesa meira
Strax…
EyjanOrð sem féllu í Kastljósinu í kvöld urðu að instant klassík: „Strax er teygjanlegt hugtak.“
Best í heimi?
EyjanÞað er farið að tala um fyrirmyndarlandið Ísland. Rifjar upp minningar frá 2007, eins og Ingi Freyr Vilhjálmsson bendir á í DV.
Eyðileggja Norðmenn olíudrauma Íslendinga?
EyjanNoregur getur eyðilagt olíudrauma Íslendinga, má lesa í Aftenbladet í Noregi. Nýir stjórnarflokkar í Noregi hafa ákveðið að hætta við olíuleit á Jan Mayen svæðinu og það getur haft mikil áhrif á fyrirætlanir Íslendinga um olíuvinnslu þar. Möguleikar Íslands hafa ekki síst legið í því að vera í samfloti við Norðmenn. Aftenbladet hefur eftir Terje Hagevang, Lesa meira