fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025

Silfuregils

Ekki teljandi skortur á lögreglumönnum

Ekki teljandi skortur á lögreglumönnum

Eyjan
21.10.2013

Eiginlega finnst manni ekki hægt að taka mark á kvörtunum um mannaflaskort hjá lögreglunni ef hún getur teflt fram á sjötta tug lögreglumanna til að eiga við nokkra mótmælendur í Gálgahrauni. Á sjötta tug – það er semsagt meira en fimmtíu. Mikið lögreglulið. Og stóðu svo í því að handtaka fólk fjörutíu sinnum. Það skiptir Lesa meira

Króatar en ekki Grikkir

Króatar en ekki Grikkir

Eyjan
21.10.2013

Ég var búinn að ímynda mér að ég myndi fara fyrir flokki Íslendinga til Grikklands þegar þjóðirnar lékju um sæti í heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Að fólkið myndi skoða Akrópólis, Lýkabettos og Plaka þegar það fengi tíma frá íþróttunum. En þetta á ekki að verða, við fengum Króatíu. Kannski eigum við alveg jafn mikla (litla) möguleika Lesa meira

Alltaf í símanum

Alltaf í símanum

Eyjan
21.10.2013

Síðasta færsla mín hét Internetið, viðvörun frá sögunni. Þar sáum við litla mynd um hvernig internetið fer með mannleg samskipti. Hér er önnur þörf áminning, um farsímana sem eru alls staðar með og alltaf á lofti.

Skoðanakönnun sýnir vonbrigði með ríkisstjórnina

Skoðanakönnun sýnir vonbrigði með ríkisstjórnina

Eyjan
20.10.2013

Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar er ansi slæm fyrir ríkisstjórnina, en þó ekki síst Framsóknarflokkinn og forsætisráðherrann, formann hans. Framsóknarflokkurinn er samkvæmt henni kominn niður í 15 prósenta fylgi, tapar tíu prósentustigum frá kosningunum. Hann er semsagt að komast á þær slóðir sem hann var áður en fylgisaukningin mikla var á mánuðunum fyrir kosningarnar. Það fylgi fékk Lesa meira

Tilgátugripir í tilgátukirkju

Tilgátugripir í tilgátukirkju

Eyjan
20.10.2013

Ég hef alltaf verið heillaður af hinum stóru miðaldadómkirkjum sem voru reistar úr timbri á Íslandi – í landi þar sem voru engin tré. Það þurfti semsagt að flytja viðina til Íslands með skipum frá Noregi – það hefur ekki verið neitt smáverk. En þetta sýnir hvað þjóðin var í ágætu samskiptum við umheiminn á Lesa meira

Aðild að ESB stöðvar ekki viðskipti við ríki utan þess

Aðild að ESB stöðvar ekki viðskipti við ríki utan þess

Eyjan
19.10.2013

Í hinni ruglingslegu umræðu um Evrópusambandið hefur margt orðið nánast að viðteknum sannindum án þess að flugufótur sé fyrir því. Eitt af þessu er sú fullyrðing að ef við gengjum í ESB myndum við lokast þar inni og ekki geta átt viðskipti við lönd utan sambandsins. Þetta stenst enga skoðun. Raunar er það svo að Lesa meira

Saga um stéttabaráttu

Saga um stéttabaráttu

Eyjan
19.10.2013

Eftir að ég sá myndböndin hér að neðan dró ég fram úr bókahillu rit sem ég hef ekki skoðað í marga áratugi, Úrvalsrit Marx og Engels, útgefið af Heimskringlu í Reykjavík 1968. Þar stendur í Kommúnistaávarpinu: „Saga mannfélagsins hefur fram að þessu verið saga um stéttabaráttu.“ Þetta er frá Bandaríkjunum: Og þetta er frá Bretlandi:

Fræðistörf í Árnapytti

Fræðistörf í Árnapytti

Eyjan
18.10.2013

Bjarki Karlsson, málfræðingur og skáld, birtir þessa mynd á Facebook-síðu sinni. Eins og hann orðar það þá er hann þarna við „fræðistörf í Árnapytti“. Þ.e. hinu nýja Húsi íslenska fræða – eða holunni þar sem það á að rísa.

Mest lesið

Ekki missa af

Staðfesta komu Pogba