United slátrun í frumraun Sanchez
433Manchester United er komið áfram í enska bikarnum eftir 0-4 sigur á Yeovil á útivelli. Alexis Sanchez þreytti frumaun sína í byrjunarliði United í leiknum. Sóknarmaðurinn var líflegur í leiknum og átti þátt í fyrsta mark leiksins sem Marcus Rashford skoraði í fyrri hálfleik eftir skelfileg mistök í vörn Yeovil. Sanchez lagði svo upp annað Lesa meira
Margrét og Elísa ófrískar og meiddar en gera nýja samninga
433Systurnar Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur skrifuðu í dag undir nýjan samning við Knattspyrnufélagið Val. Þær hafa verið að vinna sig til baka úr meiðslum sem þær urðu fyrir á síðasta ári og hafa æft vel í vetur enda íþróttakonur í fremstu röð og metnaðarfullar. Báðir eru ófrískar þessa stundina en þær ólust upp hjá Lesa meira
Jón Daði byrjaði er Reading datt úr leik
433Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Reading er liðið heimsótti Sheffield Wednesday í enska bikarnum í kvöld. Jón Daði skaut Reading áfram í síðustu umferð með þrennu gegn Stevenage. Jón og félagar áttu hins vegar aldrei séns í kvöld en Sheffield vann 3-1 sigur á heimavelli. Jón Daði lék allan leikinn i sóknarlínu Reading en Lesa meira
Aubameyang í hóp hjá Dortmund á morgun
433Pierre-Emerick Aubameyang framherji Borussia Dortmund vill komast til Arsenal. Félögin ræða saman og Aubameyang hefur ekki spilað síðustu leiki Dortmund. Framherjinn frá Gabon verður hins vegar í leikmannahópi Dortmund gegn Freiburg á morgun. Það gæti verið merki um að viðræður félaganna gangi ekkert alltof vel. Félagaskiptaglugginn lokar á miðvikudag og margt getur gerst þangað til. Lesa meira
Laporte ekki í hóp í kvöld – Á leið til City
433Það virðist vera stutt í það að Manchester City gangi frá kaupum á Aymeric Laporte varnarmanni Athletic Bilbao. Laporte er ekki í leikmannahópi liðsins í kvöld. Bilbao mætir Eibar í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. City borgar 57 milljónir punda fyrir þennan öfluga leikmann samkvæmt fréttum. Hann er 23 ára gamall og verður dýrasti leikmaður í Lesa meira
Furðuleg skilaboð Aubameyang – Hatið mig eða elskið mig
433Pierre-Emerick Aubameyang framherji Borussia Dortmund vill komast til Arsenal. Félögin ræða saman og Aubameyang hefur ekki spilað síðustu leiki Dortmund. ,,Hatið mig eða elskið mig,“ skrifar framherjinn frá Gabon á Instagram. Aubameyang er öflugur framherji sem myndi styrkja lið Arsenal hressilega. Skilaboðin hafa vakið furðu en mál hans ættu að skýrast um helgina. Hate me Lesa meira
Tottenham ræðir það að kaupa Lucas
433Tottenham er í viðræðum við Paris Saint-Germain um kaup á Lucas Moura. PSG og Spurs ræða um kaupverðið en talið er að Tottenham sé til í að borga rúmar 20 milljónir punda. Þessi 25 ára gamli leikmaður er ekki í plönum PSG en liðið hefur marga magnaða leikmenn. Lucas er öflugur leikmaður en mörg stórlið Lesa meira
Sanchez byrjar sinn fyrsta leik gegn Yeovil
433Manchester United heimsækir Yeovil í enska bikarnum i kvöld en Alexis Sanchez þreytir þar frumraun sína. Sanchez kom til United á mánudag og spilar nú sinn fyrsta leik. Fleiri fá tækifæri sem spilað hafa minna en þar á meðal er Michael Carrick. Byrjunarlið Yeovil: Krysiak, Smith, Bird, Wing, Gray, Dickson, Zoko, Surridge, Green, Showumni, James. Lesa meira
Lallana meiddur – Klopp reyndi að passa sig
433Adam Lallana miðjumaður Liverpool er með meiðsli í læri og verður ekki með gegn West Brom um helgina. Lallana hefur verið að koma sér í gang eftir erfið meiðsli en nú hefur komið bakslag. Miðjumaðurinn er einn af þeim sem á að fylla í skarð Philippe Coutinho sem er farinn til Barcelona. ,,Lallana er með Lesa meira
Jose Mourinho fékk 170 milljóna króna launahækkun
433Jose Mourinho stjóri Manchester United fékk góða launahækkun þegar hann skrifaði undir nýjan samning í gær. Mourinho var með 13,8 milljónir punda á ári en er nú með 15 milljónir punda á ári. Hann fékk því 170 milljóna króna launahækkun á ári. Samningurinn gildir til ársins 2020 og er með möguleika á árs framleningu, í Lesa meira